
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi er hluti af stærstu mannúðar- og hjálparsamtökum heims. Allt starf Rauða krossins miðar að því að bregðast við og aðstoða þar sem neyðin er mest.
Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans veita aðstoð og dreifa hjálpargögnum í hverju landi fyrir sig. Þannig tryggir Rauðakrosshreyfingin að hjálpin komist beint til skila til þeirra hópa sem mest þurfa á aðstoð að halda. Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans eru 190 en einungis eitt Rauða kross félag má starfa í hverju landi. Saman mynda Alþjóðaráð Rauða krossins, Alþjóðasambandið og landsfélögin, alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans.

Sérfræðingur í skyndihjálp
Rauði krossinn á Íslandi óskar eftir jákvæðum og framsýnum sérfræðingi í skyndihjálp. Starfið hentar vel skipulögðum einstaklingi sem hefur ríka þjónustulund og áhuga á að stuðla að öryggi og velferð samfélagsins.
Sérfræðingur í skyndihjálp tilheyrir fjáröflunar- og kynningarsviði Rauða krossins og ber sá aðili ábyrgð á að tryggja gæði og samræmi í námskeiðahaldi, styður við samstarfsfólk sitt í teyminu og leiðbeinendur. Viðkomandi kemur að þróun og nýsköpun í fræðslu og kennsluaðferðum sem og samskiptum og sölu við viðskiptavini, fyrirtæki o.s.frv.
Um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og kynning á skyndihjálp
- Tryggja gæði, fagmennsku og samræmi í námskeiðahaldi í skyndihjálp
- Utanumhald á skráningu og réttindamálum leiðbeinenda í skyndihjálp
- Stuðla að þróun námskeiða, kennsluhátta og stafrænna lausna
- Umsjón með umbótaverkefnum, gæðavinnu og þróun námsefnis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi (leiðbeinendaréttindi í skyndihjálp frá Rauða Krossinum æskileg).
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Reynsla af starfi með sjálfboðaliðum, félagasamtökum eða samfélagsverkefnum er kostur.
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna sjálfstætt.
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og þjónustulund
- Sveigjanleiki
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra
Landspítali

Starfsmaður í afgreiðslu.
Aðalskoðun hf.

Langar þig að selja íslenskan lax á alþjóðamarkaði?
Arnarlax ehf

Lögfræðingur
Útlendingastofnun

Skrifstofustarf á Akureyri
Frost

Fulltrúi á kjarasviði
Verkfræðingafélag Íslands

Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Shift Manager
Bus4u Iceland

Hjúkrunarnemar á 3. eða 4. ári með áhuga á geðhjúkrun - spennandi tækifæri á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf - Only Icelandic speaking!
ATC