
Starfsmaður í afgreiðslu.
Aðalskoðun óskar eftir starfsmanni í afgreiðslu og móttöku viðskiptavina.
Við erum að leita eftir hressum og kátum einstaklingi sem er frábær í mannlegum samskiptum, hefur góða almenna tölvukunnáttu og er fljót(ur) að læra og tileinka sér nýjungar. Um er að ræða 100% starf. Umsóknarfrestur til 1 september.
Hæfniskröfur:
- Góðir samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Tölvukunnátta
- Góð hæfni í íslensku og ensku
Aðalskoðun er þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á fagleg vinnubrögð við skoðun ökutækja og ríka þjónustulund, en í starfinu felast eðlilega mikil samskipti við viðskiptavini.
Hjá Aðalstoðun starfa um 40 manns, þar er um a ræða færa einstaklinga sem njóta góðra þjálfunar og aðbúnaðar við sín störf. Opnunartími skoðunarstöðva er frá kl 8:00-16:00 og er því vinnutími starfsfólks mjög fjölskylduvænn.
Aðalskoðun rekur 7 skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess.
Móttaka og afgreiðsla viðskiptavina,samskipti og upplýsingagjöf
Íslenska
Enska










