
Hæstiréttur Íslands
Hæstiréttur Íslands, æðsti dómstóll þjóðarinnar,
var stofnaður með lögum nr. 22/1919 og tók formlega til starfa 16. febrúar 1920
Starfsmaður á skrifstofu
Hæstiréttur Íslands leitar að þjónustulunduðum og ábyrgum einstaklingi til starfa á skrifstofu réttarins. Um er að ræða fjölbreytt starf í 80% starfshlutfalli sem felur í sér margvísleg og mikilvæg verkefni á sviði stoðþjónustu.
Leitað er að einstaklingi sem hefur jákvætt viðhorf, sýnir frumkvæði og sjálfstæði í starfi, er tilbúinn að takast á við ólík verkefni og býr yfir góðri samskiptafærni.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling sem vill vinna í starfsumhverfi þar sem fagmennska, traust og samvinna eru í öndvegi. Starfið heyrir undir skrifstofustjóra réttarins og veitir innsýn í störf æðsta dómstigs landsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka og skráning málsgagna ásamt umsjón með pökkun og frágangi þeirra
- Móttaka dómsmálagjalda og gerð reikninga
- Móttaka og upplýsingagjöf til þeirra sem til réttarins leita
- Aðstoð við móttöku gesta
- Umsjón með tölvupósthólfi réttarins
- Umsjón með dómsölum fyrir og eftir málflutning og dómsuppkvaðningu
- Innkaup rekstrarvara og umsjón með kaffistofu, ljósritunaraðstöðu og öðrum sameiginlegum rýmum
- Önnur tilfallandi verkefni sem starfsmanni eru falin af skrifstofustjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af skrifstofustörfum
- Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf
- Nákvæmni, ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Lipurð í samskiptum og samstarfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og drifkraftur
- Góð tölvu- og tæknifærni
- Þekking og reynsla af vefumsjónar- og málaskrárkerfum
- Mjög góð færni í íslensku og góð færni í ensku
- Þekking og skilningur á ferli dómsmála er kostur
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lindargata 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölumaður/skrifstofa dagvinna - framtíðarstarf - Only Icelandic speaking!
ATC

Árangursdrifinn söluráðgjafi öryggislausna
Öryggismiðstöðin

Svæðisstjóri Eimskips á Norðurlandi
Eimskip

Sérfræðingur í tekjustýringu
Hótel Cabin, Hótel Klettur, Hótel Örk & Hótel Laki

Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun

Skrifstofustarf - Þjónusta við viðskiptavini
Garðaþjónusta Sigurjóns ehf

Móttökuritari - Röntgen Orkuhúsinu
Röntgen Orkuhúsinu

Sérfræðingur bókhalds
Norðurál

Sérfræðingur í reikningsskilum óskast til liðs við öflugt uppgjörsteymi
Grant Thornton

Er bókhald og uppgjör þitt fag?
Hekla

FERÐASKRIFSTOFA - Utanlandsferðir
Ferðaland

Sérfræðingur í umsýslu endurgreiðslna
Kvikmyndamiðstöð Íslands