

Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á legudeild geðrofssjúkdóma
Vilt þú starfa í öflugu teymi þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif og lagt þitt af mörkum í starfi sem skiptir máli?
Legudeild geðrofssjúkdóma leitar að jákvæðu og metnaðarfullu starfsfólki í 80-100% starf, sem getur unnið á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á geðheilbrigði, á auðvelt með samskipti og vill taka virkan þátt í batamiðaðri þjónustu fyrir einstaklinga með geðrofssjúkdóma.
Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir bæði bráðameðferð og endurhæfingu fyrir fólk með geðrofsssjúkdóma. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm. Á deildinni starfar öflugt þverfaglegt teymi þar sem áhersla er lögð á gott samstarf, fagmennsku og góðan starfsanda.
Starf ráðgjafa felur meðal annars í sér stuðning og líkamlega umönnun sjúklinga, hvatningu og aðstoð við athafnir daglegs lífs og þátttöku í virkni og endurhæfingu. Mikilvægur hluti starfsins er jafnframt að stuðla að öruggu meðferðarumhverfi og taka þátt í að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks með þátttöku í varnarteymi geðþjónustu.
Við leggjum áherslu á fjölbreyttan starfsmannahóp þar sem þekking, reynsla og styrkleikar hvers og eins fá að njóta sín. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og leggjum áherslu á góða og einstaklingsmiðaða aðlögun.
Starfið er laust frá 15. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Íslenska



































