

Hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild Landakoti
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á taugaendurhæfingardeild K2 Landakoti. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt nánara samkomulagi og í boði er góð aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum.
Hjúkrunarfræðingum á deildinni býðst tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu á hjúkrun eldri sjúklinga með áverka/ sjúkdóma á taugakerfinu en sérhæfð fræðsla á vegum Taugaskólans hefst í haust.
Deildin er 18 rúma meðferðar- og endurhæfingardeild fyrir sjúklinga með áverka eða sjúkdóma á taugakerfi sem koma frá bráðadeildum Landspítala. Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til þess að takast á við athafnir daglegs lífs og/ eða auka líkamlega, andlega og félagslega færni þeirra. Unnið er eftir hugmyndafræði endurhæfingar sem felst m.a. í því að lögð er áhersla á að endurhæfingin sé sameiginlegt verkefni milli einstaklings sem í hlut á, þeirra sem standa honum næst og þverfaglegs teymis sem viðurkennir framlag allra þeirra sem í hlut eiga.
Á deildinni starfa um 40 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Við vinnum markvisst að umbótum í starfi og umhverfi. Við leggjum áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki og vinnustaðnum okkar.
Velkomið er að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafi samband við Jóhönnu, deildarstjóra.
Íslenska



































