
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni
Systurfyrirtækin Eirberg og Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf.
Eirberg ehf. er framsækið verslunar-, innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem hefur á að skipa þjónustumiðuðu starfsfólki. Markmið okkar eru að auka lífsgæði, efla heilsu, auðvelda störf og daglegt líf.
Verslun okkar hefur nokkra sérstöðu hvað vöruval og gæði snerta þar sem góð upplifun viðskiptavina er okkur mikilvæg.
- Við berum umhyggju fyrir vellíðan viðskiptavina okkar, hlustum og veitum góða þjónustu.
- Við njótum þess að mæta þörfum viðskiptavina okkar með góðri ráðgjöf og leggjum okkur fram við að hjálpa fólki að auka lífsgæði sín.
- Við mætum hverjum og einum viðskiptavini þar sem hann er og finnum í sameiningu leiðir sem gera viðskiptavininum kleift að njóta sín og eigin heilsu.
Systurfyrirækið Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. býður m.a. hjálpartæki, hjólastóla, heilbrigðisvörur og faglega ráðgjöf.
Þar starfa hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi og aðrir sérfræðingar í velferðartækni. Markmiðin eru að auðvelda fólki daglegt líf, styðja einstaklinga til sjálfshjálpar, auka vinnuvernd og hagræði.
Stuðlaberg er með samninga við Sjúkratryggingar Íslands m.a. um:
• Bað- og salernishjálpartæki
• Barna- og hjúkrunarrúm
• Gönguhjálpartæki
• Hjólastóla og hjálparmótora
• Viðgerðarþjónustu hjálpartækja
Stuðlaberg er með rammasamning við Fjársýslu Ríkisins m.a. um:
• Rafknúin Hjúkrunar- og Sjúkrarúm
• Náttborð
• Rúmgálga og Hliðarstuðning
• Flutningsbretti og Snúningsdiska
• Flutningssegl og Lyftara
• Loftfest lyftukerfi
• Sturtustóla
• Upphækkun á salerni
• Bekken og Þvagflöskur
• Göngugrindur
• Hjólastóla
• Hnakkastóla á hjólum
• Lyftihægindastóla
• Blöðruskanna og Lífsmarkamæla
• Krómvagna og Stálborð
• Rusla- og Taugrindur
• Tölvu- og Lyfjavagna
Söluráðgjöf Stuðlabergs á sviði stóma- og þvagleggja er sú viðamesta hér á landi og er í höndum hjúkrunarfræðinga sem hlotið hafa sérþjálfun framleiðenda. Veitt er persónuleg aðstoð við að finna hentugar vörur á þessu sviði.

Söluráðgjafi hjá Stuðlabergi heilbrigðistækni
Vegna aukinna verkefna leitar Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. að heilbrigðismenntuðum söluráðgjafa með áherslu á ráðgjöf og þjónustu á hjálpartækjum og þrýstingsvörum í samning við Sjúkratryggingar Íslands.
Um er að ræða ráðgjöf og sölu á hjólastólum, vinnustólum, sessum og tengdum búnaði. Auk þess mun viðkomandi sinna móttöku viðskiptavina í mælingar og ráðgjöf á þrýstingsvörum í samstarfi við aðra í teyminu. Viðkomandi mun bætast við samheldið teymi reynslumikilla sérfræðinga í velferðar- og heilbrigðistækni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og sala á hjólastólum, vinnustólum og sessum
- Ráðgjöf og mælingar á þrýstingsfatnaði, vafningum og aðgerðarfatnaði
- Innkaup og samskipti við erlenda birgja
- Þátttaka í vörukynningum, vinnustofum og vörusýningum.
- Útboðsgerð í samvinnu við teymið.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á heilbrigðissviði æskilegt.
- Reynsla af söluráðgjöf kostur.
- Fagleg vinnubrögð og skipulag
- Rík þjónustulund og nærgætni
- Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 25, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tölvukunnáttaÁreiðanleikiDynamics NAVFagmennskaFrumkvæðiHjúkrunarfræðingurHreint sakavottorðMicrosoft Dynamics 365 Business CentralNákvæmniSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSjúkraliðiSkipulagSölumennskaTeymisvinnaÞjónustulundÞroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Íbúðakjarni / Skammtímavistun: Þroskaþjálfi
Dalvíkurbyggð

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali

Aðstoðarmaður tannlæknis
Breiðaklöpp

Hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslunni Höfða
Heilsugæslan Höfða

Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali

Sjúkraliði Efri byggð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunardeildarstjóri bráðamóttöku HSU - tímabundin staða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Korpuskóli, Barðastöðum 2, óskar eftir sjúkraliða til starfa við skólann
Klettaskóli

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland