Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing

Hjúkrunarfræðingur hjá Kjarki endurhæfingu – erum við að leita af þér?

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Kjarki endurhæfingu. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem teymisvinna, sjálfstæði í starfi og góður starfsandi er í fyrirrúmi.

Um er að ræða hlutastarf á dagvöktum (virka daga og rauða daga) og fjórðu hverja helgi, ásamt bakvöktum eftir skipulagi. Starfshlutfall er umsemjanlegt. Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Kjarkur endurhæfing er endurhæfingarstofnun sem veitir einstaklingum á aldrinum 18-67 ára áframhaldandi endurhæfingu eftir að frumendurhæfingu lýkur. Markmið þjónustunnar er að styðja einstaklinga við að aðlagast breyttum aðstæðum og auka hæfni og þátttöku í daglegu lífi.

Hjá Kjarki endurhæfingu starfar þverfaglegur hópur fagfólks við endurhæfingu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Meta þörf, skipuleggja og veita heildræna hjúkrunar- og endurhæfingarmeðferð
  • Styðja skjólstæðinga í endurhæfingu
  • Skipuleggja og veita fræðslu til skjólstæðinga og aðstandenda
  • Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi með öðrum heilbrigðisstéttum
  • Að stuðla að og þróa aðferðir til að bæta þjónustuna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Reynsla af endurhæfingarhjúkrun er kostur
  • Fagleg vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Lausnamiðun og sjálfstæði í starfi
  • Góð skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Góð vinnuaðstaða
  • Virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur11. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hátún 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar