Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérfræðingur í hjúkrun á speglunardeild Hringbraut

Starf sérfræðings í hjúkrun speglunarsjúklinga á speglunardeild 11D við Hringbraut er laust til umsóknar frá 1. október 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100%.

Við leitum eftir einstaklingi sem hefur hæfileika til að leiða fólk saman, býr yfir farsælli reynslu af teymisstjórnun og leggur áherslu á að byggja upp traust og efla sálrænt öryggi í samstarfi.

Sérfræðingur í hjúkrun speglunarsjúklinga á speglunardeild starfar samkvæmt starfslýsingu sérfræðinga í hjúkrun á Landspítala. Starfið felur í sér framþróun hjúkrunar á deildinni, þátttöku í gæða- og umbótaverkefnum, ráðgjöf, kennslu og fræðslu til starfsfólks og nemenda, auk þátttöku í akademísku starfi og rannsóknum. Jafnframt sinnir sérfræðingur klínískum störfum á deildinni og tekur þátt í uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við skjólstæðinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.

Speglunareiningin sinnir bæði almennum speglunum en er einnig sú sérhæfðasta á landinu og sinnir því sjúklingum alls staðar að.

Á deildinni starfar um 30 manna hópur samhents starfsfólks, í nánu samstarfi við marga sérfræðinga Landspítala. Starfsstöðvar eru tvær, við Hringbraut þar sem stærri hluti speglana fer fram og í Fossvogi. Deildin er í sókn á mörgum sviðum. Þjónusta við sjúklinga hefur verið bætt og aukin, mikil og góð samvinna er við aðra starfsemi spítalans og hafa svæfingar við flóknari inngrip aukist mikið. Það hefur verið forsenda fyrir því að nýjar tegundir inngripa eru í boði og eru frekari nýjungar og framþróun á stefnuskránni.

Sérfræðingur í hjúkrun vinnur sjálfstætt skv. reglugerð nr. 512/2013 og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart stofnun og næsta yfirmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur
Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun
Íslenskt sérfræðileyfi sem sérfræðingur í hjúkrun
Starfsreynsla í hjúkrun speglunarsjúklinga
Mjög góð leiðtoga- og samskiptahæfni
Víðtæk reynsla af teymisvinnu
Reynsla af gæða og umbótaverkefnum
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun hjúkrunar og þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra innan sérgreinar
Frumkvæði að gæðaumbótum og innleiðingu nýrra verkferla meðal annars með markmið Landspítala í huga (óráð, þrýstingssár og byltuvarnir)
Er leiðandi í faglegri starfsþróun í hjúkrun speglunarsjúklinga
Klínísk störf á speglunardeild
Kennsla og fræðsla til starfsfólks, nemenda í grunn- og framhaldsnámi í heilbrigðisgreinum
Þátttaka í rannsóknarstarfi
Ráðgjöf til sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks
Stuðlar að góðum starfsanda og teymisvinnu sem einkennist af trausti og sálrænu öryggi starfsfólks
Auglýsing birt3. september 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar