Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á speglunardeild Hringbraut

Við óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing í okkar góða hóp á speglunardeild við Hringbraut. Starfshlutfall og upphaf starfs er samkomulag. Samhliða almennum hjúkrunarstörfum eru í boði fjölbreytt og sérhæfð verkefni sem einungis eru unnin á speglunareiningu. Starfsemin fer aðallega fram á dagvinnutíma en neyðarþjónusta fer fram á bakvöktum.

Speglunareiningin sinnir bæði almennum speglunum en er einnig sú sérhæfðasta á landinu og sinnir því sjúklingum alls staðar að. Á deildinni starfar um 30 manna hópur samhents starfsfólks, í nánu samstarfi við marga sérfræðinga Landspítala. Starfsstöðvar eru tvær, við Hringbraut þar sem stærri hluti speglana fer fram og í Fossvogi. Deildin er í sókn á mörgum sviðum. Þjónusta við sjúklinga hefur verið bætt og aukin, mikil og góð samvinna er við aðra starfsemi spítalans og hafa svæfingar við flóknari inngrip aukist mikið. Það hefur verið forsenda fyrir því að nýjar tegundir inngripa eru í boði og eru frekari nýjungar og framþróun á stefnuskránni.

Starfsánægja á deildinni er mjög góð og hér skipta góð samskipti og gagnkvæm virðing miklu máli, sem og skýr meðferðarmarkmið og áþreifanlegur árangur. Á deildinni starfar öflugur hópur hjúkrunarfræðinga sem getur miðlað mikilli þekkingu og reynslu. Áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og að veita góða og markvissa aðlögun.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og frumkvæði
Jákvætt viðhorf, góðir samskiptahæfileikar og færni í teymisvinnu
Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
Íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklingshæfð hjúkrun við undirbúning, fræðslu, framkvæmd og umönnun í og eftir speglanir
Vinna við speglunaraðgerðir með sérfræðilækni og með aukinni reynslu og þekkingu hjúkrunarfræðings geta inngripin orðið sérhæfðari og meira tæknilega krefjandi
Vöktun sjúklinga á vöknun speglunardeildar eftir slævingu í speglun
Lyfjagjafir, slæving, verkjastilling og vöktun sjúklinga á meðan á speglunarinngripum stendur
Aðstoð við myndgreiningu í sérhæfðum speglunum, s.s. gegnumlýsingu, ómskoðun í speglun og gjöf skuggaefnis í meltingarveg, gallvegi og brisgang við þræðingar
Þátttaka í bakvaktaþjónustu, sem er valkvæð
Tækifæri til að taka þátt í eða stýra þróunarverkefnum innan deildarinnar
Auglýsing birt3. september 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar