
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.
VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði.
VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menningu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru Fagmennska, Virðing og Metnaður og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum.

Ráðgjafi VIRK á Höfuðborgarsvæðinu
VIRK leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf ráðgjafa. Um er að ræða mjög fjölbreytt en jafnframt gefandi starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Umsækjendur þurfa að hafa víðtæka reynslu og þekkingu á einstaklingsráðgjöf og atvinnulífi. Um fullt starf er að ræða en hlutastörf koma einnig til greina. Skilyrði er heilbrigðismenntun og starfsleyfi frá landlækni auk góðrar kunnáttu í íslensku.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf, stuðningur og hvatning við einstaklinga með skerta starfsgetu
- Upplýsingaöflun, skráning og mat samkvæmt gildandi verkferlum
- Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK
- Vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, fagaðila í starfsendurhæfingu og vinnustaði
- Samskipti við stéttarfélög og atvinnurekendur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda og starfsleyfi frá landlækni, s.s. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar
- Víðtæk reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar
- Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Skipulagshæfni og kostnaðarvitund
- Góð þekking á vinnumarkaði
- Hreint sakavottorð
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur22. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 18, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali

Ráðgjafi hjá Suðurhlíð - 50% starf
Suðurhlíð

Viðskiptastjóri hjá Vistor
Vistor

Kennari óskast til starfa - frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Hjúkrunarfræðingur - Hrafnista Boðaþingi
Hrafnista

Sjúkraþjálfari óskast í endurhæfingarteymi Takts í Lífsgæðasetri St. Jó
Taktur endurhæfing Parkinsonsamtakanna

Sérfræðingur á Læk - athvarfið Lækur
Hafnarfjarðarbær

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Félagsráðgjafi - Geðheilsumiðstöð barna - tímabundið starf
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali

Iðjuþjálfi
Reykjalundur

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - Stöðin (Stöðvarfjörður)
Fjarðabyggð