Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á hjarta- og æðaþræðingastofu

Við leitum eftir öflugum hjúkrunarfræðingi til starfa á hjarta- og æðaþræðingarstofu Landspítala við Hringbraut. Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Á hjarta- og æðaþræðingarstofu starfar um 13 manna samhent teymi reyndra starfsmanna í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans. Þar eru gerðar hjartaþræðingar, kransæðavíkkanir, gangráðsísetningar, raflífeðlisfræðilegar rannsóknir/ aðgerðir og fleira sem tengist hjartasjúkdómum. Í hjartalækningum er mjög hröð framþróun og vel er fylgst með nýjungum á því sviði.

Unnið er í dagvinnu og gert er ráð fyrir að viðkomandi sinni bakvöktum eftir að þjálfun lýkur.

Hjarta- og æðaþræðingarstofur eru hluti af kjarnaþjónustu Landspítala við sjúklinga með hjartasjúkdóma. Mikil samvinna er á milli þjónustueininga kjarnans hvað varðar ferli sjúklinga eftir því hvar þeir eru staddir í sinni meðferð og hjúkrunar.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af hjúkrun hjartasjúklinga eða gjörgæsluhjúkrun
Hæfni og áhugi til að starfa í teymi
Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við hjartaþræðingar og aðgerðir þeim tengdum
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar