Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérnámsstöður í lyflækningum, seinna stig til fullra sérfræðiréttinda

Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður á seinna stigi sérnáms í lyflækningum. Um er að ræða 2 ára framhald af fyrra stigi eftir að MRCP gráðu hefur verið lokið og skilyrðum fyrra stigs mætt. Sérnámið var þróað að breskri fyrirmynd og fer fram skv. marklýsingu fyrir fullt 5 ára sérnám í lyflækningum. Seinna stigi lýkur með fullum sérfræðiréttindum og er í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnámið fer fram á Landspítala auk þess sem mögulegt er að taka hluta tímans á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu janúar til mars 2027, eða samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar. Föstudaginn 26. febrúar 2027 er móttökudagur sérnáms.

Sjá kynningarmyndband.

Sjá nánari upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna og nám á bráðadeildum, dag- og göngudeildum og legudeildum ásamt vaktþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
  • Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
  • Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
  • Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
  • Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
  • Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati og er launasetning í samræmi við staðfesta framvindu
  • Þátttaka í fræðslu og hermikennslu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafa lokið fyrri hluta sérnáms í lyflækningum, MRCP gráðu
  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
  • Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
  • Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
  • Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar