Landspítali
Landspítali
Landspítali

Almennir læknar á Sýkla- og veirufræðideild (SVEID)

Langar þig að kynnast rannsóknarlækningum? Þá er hér einstakt tækifæri í boði.

Lausar eru til umsóknar tvær stöður almennra lækna við Sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Um er að ræða tímabundin störf í 6-12 mánuði eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 100%, nema að um annað sé samið. Unnið er í dagvinnu og á bakvöktum með viðveru um helgar. Stöðurnar eru lausar eftir samkomulagi.

Sýkla- og veirufræðideild Landspítala er þjónusturannsóknastofa og tilvísunarrannsóknastofa fyrir Ísland á sviði bakteríu-, veiru-, sveppa- og sníkjudýrafræði. Deildin vinnur með sóttvarnarlækni og öðrum heilbrigðisyfirvöldum að bættri lýðheilsu. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga.

Veirufræðihluti deildarinnar er staðsettur í Ármúla 1a en sýklafræðihlutinn er að mestu leyti staðsettur á lóð Landspítala við Barónsstíg. Á deildinni starfa um 80 einstaklingar, þar af eru átta sérfræðilæknar í föstu starfi (í 6,5 stöðugildum).

Læknar Sýkla- og veirufræðideildar gegna mikilvægu hlutverki í starfsemi deildarinnar. Þeir veita almenna ráðgjöf um greiningu smitsjúkdóma og aðstoða við val á rannsóknum, sýnatökum og sendingum. Sjá um miðlun og túlkun rannsóknaniðurstaðna og taka mikinn þátt í gæðastarfi deildarinnar, meðal annars ritun gæðaskjala og staðfestingu.

Ætlunin er að almennir læknar, að lokinni aðlögun, taki þátt í læknastarfinu ásamt því að vera á gæsluvöktum með stuðningi sérfræðilæknis á bakvakt.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi
Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Góð færni í mannlegum samskiptum
Góð íslensku- og enskukunnátta áskilin, að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar