Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérnámsstöður í bráðalækningum

Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í bráðalækningum. Tekur námið 6 ár, fyrri hluti námsins er þriggja ára kjarnanám þar sem veitt er þjálfun í grunnatriðum bráðalækninga. Í framhaldssérnámi sem stendur yfir síðari þrjú árin felst viðbótarþjálfun í sérhæfðari atriðum sérgreinarinnar auk þjálfun í kennslu, gæðavinnu og stjórnun. Sérnámið byggir á marklýsingu og framvinduskráningarkerfi Royal College of Emergency Medicine í Bretlandi sem hefur verið aðlöguð til nota á Íslandi í samræmi við reglugerð 856/2023. Námið er vottað og viðurkennt af mats- og hæfisnefnd heilbrigðisráðuneytisins. Sérnám fer fram á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri og námsdvöl erlendis.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu janúar til mars 2027 en gert er ráð fyrir að upphaf ráðningar hjá þeim umsækjendum sem eru að klára sérnámsgrunn á Landspítala verði beint í kjölfarið af honum. Ef semja á um orlof þar á milli er það gert í samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar. Föstudaginn 26. febrúar 2027 er móttökudagur sérnáms.

Sjá kynningarmyndband.

Sjá nánari upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna og nám á bráðamóttöku, auk styttri námsvista í öðrum sérgreinum undir handleiðslu sérfræðilækna
  • Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
  • Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
  • Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
  • Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
  • Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati og er launasetning í samræmi við staðfesta framvindu
  • Þátttaka í fræðslu og hermikennslu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
  • Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
  • Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
  • Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar