Landspítali
Landspítali
Landspítali

Almennir læknar - Hefur þú augastað á augnlækningum?

Við sækjumst eftir almennum læknum sem hafa áhuga á sérfræðinámi í augnlækningum. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust samkvæmt samkomulagi. Um er að ræða tímabundið starf í 6-12 mánuði samkvæmt nánara samkomulagi. Tvær stöður eru í boði.

Ekki er um að ræða sérnámsstöður, en undirbúningur hlutasérnáms í augnlækningum á Íslandi stendur yfir.

Við augnlækningar starfar öflugur hópur sérfræðilækna og almennra lækna í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun.

Menntunar- og hæfniskröfur
Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
Íslenskt lækningaleyfi
Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
Vilji til virkrar þáttöku í teymisvinnu skilyrði. Reynsla og þjálfun af teymisvinnu kostur
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjálfun í augnlækningum með þátttöku í klínísku starfi á göngu- og legudeild augndeildar auk bakvakta
Vinna við ráðgjöf undir umsjón sérfræðilækna
Kennsla kandídata, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna, eftir því sem við á
Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar