Landspítali
Landspítali
Landspítali

Læknir með lækningaleyfi - Hefur þú áhuga á rannsóknalækningum?

Við sækjumst eftir læknum sem hafa áhuga á sérnámi í rannsóknarlækningum og blóðbankafræðum. Starfshlutfall er 100% og upphaf starfa eftir samkomulagi. Starfið er tímabundið í 6-12 mánuði eða samkvæmt nánara samkomulagi innan sérgreina rannsóknalækninga og Blóðbankans. Um er að ræða dagvinnu án vakta í flestum tilvikum. Umsækjendur velja sér sérsvið, auk þess að setja fram óskir varðandi þátttöku í starfsemi annarra sérgreina þar sem viðkomandi myndi fara í a.m.k. 3. mánaða blokkir innan valdra sérgreina.

Þær sérgreinar sem um ræðir á sviðinu eru sýkla- og veirufræði, erfða- og sameindalæknisfræði, blóðbankafræði, ónæmisfræði, meinafræði, klínísk lífefnafræði og blóðmeinafræði.

Við rannsóknarlækningar starfa reyndir sérfræðilæknar ásamt öðrum læknum í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun. Sérnám í rannsóknalækningum er í undirbúningi á Landspítala en hefur ekki hafist enn.

Menntunar- og hæfniskröfur
Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi við upphaf starfa
Íslenskt lækningaleyfi eða uppfylla skilyrði til þess
Góð færni í mannlegum samskiptum
Öguð vinnubrögð
Íslenskukunnátta, að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
Helstu verkefni og ábyrgð
Þjálfun í rannsóknalækningum með þátttöku í greiningarannsóknum
Vinna við ráðgjöf undir umsjón sérfræðilækna
Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsmanna, eftir því sem við á
Þátttaka í vísindastarfi, þróunar- og gæðaverkefnum
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar