Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarnemar á 2.- 4. ári - hlutastörf með námi á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild

Við óskum eftir að ráða 2.- 4. árs hjúkrunarnema í hlutastörf með skóla á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild 13EG við Hringbraut. Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta. Hjúkrunarnemar fá markvissan stuðning samhliða starfi á deildinni. Um vaktavinnu er að ræða og ráðið er í störfin sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Deildin þjónar einstaklingum sem glíma við sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og í þvagfærum. Sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til að öðlast fjölþætta reynslu. Við bjóðum einstaklingsmiðaða aðlögun eftir þörfum hvers og eins með áherslu á fagmennsku og starfsþróun.

Á deildinni starfar kraftmikill hópur tæplega 100 starfsmanna, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og sérhæft starfsfólk. Góður starfsandi er ríkjandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.

Menntunar- og hæfniskröfur
Hjúkrunarnemi á 2.- 4. ári
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun bæklunarsjúklinga og annarra sjúklinga sem á deildinni dvelja
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Góð íslenskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk og ábyrgð er í samræmi við starfslýsingar hjúkrunarnema eftir lengd náms
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þátttaka í þróun og umbótum
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur18. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar