Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérnámsstöður í barnalækningum

Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í hlutasérnámi til tveggja ára í barnalækningum. Sérnámið er vottað af mats- og hæfisnefnd heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023 og byggt á marklýsingu evrópsku barnalæknasamtakanna (European Academy of Pediatrics). Sérnámið fer fram á Barnaspítala Hringsins. Auk þess er boðið upp á 3 mánaða viðbótarþjálfun á barna- og unglingageðdeild Landspítala.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er á bilinu janúar til mars 2027, en gert er ráð fyrir að upphaf ráðningar hjá þeim umsækjendum sem eru að klára sérnámsgrunn á Landspítala verði beint í kjölfarið af honum. Ef semja á um orlof þar á milli er það gert í samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar. Föstudaginn 26. febrúar 2027 er móttökudagur sérnáms.

Sjá kynningarmyndband.

Sjá nánari upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna og nám á bráðamóttöku barna, legudeildum og nýburadeild, dag- og göngudeildum ásamt vaktþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
  • Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
  • Virk þátttaka í fræðslu og kennslu er hluti af sérnáminu
  • Þátttaka í gæða- og vísindavinnu. Sérnámlæknir á að ljúka a.m.k. einum klínískum leiðbeiningum/ verklagsreglum og einu gæðaverkefni skv. stöðlum Landspítala
  • Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
  • Framgangur milli námsára er ákvarðaður með framvindumati og er launasetning í samræmi við staðfesta framvindu
  • Þátttaka í fræðslu og hermikennslu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hafa lokið sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi, sem samþykkt hefur verið af kennsluráði sérnámsgrunns, við upphaf starfs
  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
  • Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
  • Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
  • Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar