

Sálfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna HH
Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með geðrænan vanda?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar af sálfræðingi til starfa í meðferðateymi hjá Geðheilsumiðstöð barna. Við óskum eftir drífandi, metnaðarfullum og jákvæðum sálfræðingi sem hefur áhuga á að vinna samkvæmt klínískum leiðbeiningum við mat og meðferð barna og ungmenna með miðlungs – alvarlegan geðrænan vanda. Starfað er í þverfaglegu meðferðarteymi við mat, meðferð og ráðgjöf til barna og fjölskyldna þeirra. Teymið veitir einnig ráðgjöf til fagaðila og annarra þjónustuaðila á landsvísu. Starfið felur í sér einstakt tækifæri til að taka þátt í og hafa áhrif á mótun og uppbyggingu þjónustu og hentar fagaðila sem vill hafa áhrif á geðheilbrigðisþjónustu barna til frambúðar.
Geðheilsumiðstöð barna veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og taugaþroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í annað starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.
- Greining og mat á miðlungs til alvarlegum geðrænum vanda hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri
- Sérhæfð meðferð á miðlungs til alvarlegum geðrænum vanda hjá börnum og ungmennum að 18 ára aldri
- Ráðgjöf til foreldra og nærumhverfis út frá þörf skjólstæðinga
- Þátttaka í umbótastarfi, faglegri þróun teymis og uppbyggingu gagnreyndrar geðheilbrigðisþjónustu
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Starfsleyfi frá Embætti landlæknis sem sálfræðingur
- 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
- Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu við meðferð og greiningu á geð- og taugaþroskavanda barna
- Þekking og reynsla af notkun sálfræðilegra matstækja og greiningu algengustu geðraskana barna og ungmenna er æskileg
- Þekking á mat og meðferð á taugaþroskavanda kostur
- Sérhæfing á sviði þroska-, geð- og hegðunarvanda hjá börnum æskileg
- Frumkvæði, áhugi og metnaður fyrir því að veita árangursríka, gagnreynda meðferð
- Hlýlegt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Faglegur metnaður
- Sjálfstæði, frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að veita meðferð í flóknum aðstæðum og lausnamiðuð nálgun
- Áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta
- Góð almenn enskukunnátta
Sí- og endurmenntun
Heilsustyrkur
Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska















