Landspítali
Landspítali
Landspítali

Þjónustustjóri á Göngudeild smitsjúkdóma

Hefur þú reynslu af skipulagi og ferlum innan heilbrigðiskerfis? Ertu til í umbótastarf sem krefst tölvufærni og framúrskarandi samskiptahæfni? Nýtur þú þess að vinna með fólki að sameiginlegum markmiðum?

Starf þjónustustjóra er nýtt, lifandi og fjölbreytt starf. Við sækjumst eftir einstaklingi sem stýrir flæði sjúklinga skv. ferlum og hefur metnað í bæta ferla og tryggja árangursríka þjónustu. Starfið hentar vel þeim sem hafa áhuga á verkefnastjórnun, framþróun og góðri þjónustu. Starfið felur m.a. í sér utanumhald sjúklingahópa og samskipti við sjúklinga, umsjón með gagnagrunnum og gæðavísum, verkefni á sviði umbóta og þróunar ásamt því að taka þátt í innleiðingu umbóta og gæðaverkefna.

Göngudeild smitsjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og eftirfylgd einstaklinga með tilkynningarskylda sjúkdóma. Sjúklingahópurinn er stór og hefur margvíslegar þjónustuþarfir. Á deildinni starfa sérfræðilæknar, hjúkrunarfræðingar og ritarar. Viðkomandi mun vinna náið með klínísku starfsfólki deildar

Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar. Áhugasömum er velkomið að hafa samband deildarstjóra.

Viðkomandi mun vinna þétt með þverfaglegu teymi hjúkrunarfræðinga og lækna og fá góðan aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Utanumhald á sjúklingahópum
  • Hafa umsjón með meðferðarferlum sjúklinga frá tilvísun til loka meðferðar
  • Samskipti við sjúklinga vegna tímabókana og rannsókna
  • Umsjón með gagnagrunnum
  • Vinnsla tölulegra upplýsinga
  • Sérhæfð verkefni sem tengjast umbótastarfi, ferlagreiningu, samskiptum og samhæfingu
  • Önnur verkefni að beiðni deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði
  • Viðbótarmenntun eða framhaldsnám í heilbrigðisstjórnun, upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu, verkefnastjórnun æskileg
  • Reynsla af teymisstjórnun og/eða sambærilegu starfi í klínísku umhverfi kostur
  • Leiðtoga- og skipulagshæfni
  • Mjög góð samskiptahæfni og jákvæðni, hvetjandi og lausnarmiðuð hugsun í starfi
  • Framúrskarandi tölvukunnátta
  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur17. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar