Lauf Cycles hf.
Lauf Cycles hf.
Lauf Cycles hf.

Markaðssérfræðingur

Samfélagsmiðlar, efnissköpun & viðburðir

Við hjá Lauf Cycles leitum að metnaðarfullum og skapandi einstaklingi til að ganga til liðs við markaðsteymið okkar. Við leitum að manneskju sem hefur brennandi áhuga á samfélagsmiðlum og efnissköpun en er jafnframt tilbúin að taka virkan þátt í skipulagningu og framkvæmd viðburða Lauf og The Rift, bæði á Íslandi og erlendis.

Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem unnið er náið með markaðsteymi Lauf í að auka sýnileika og styrkja Lauf sem alþjóðlegt vörumerki.


Meira um starfið

Stór hluti starfsins snýst um að halda utan um samfélagsmiðla Lauf Cycles og The Rift. Þar á meðal að skipuleggja, framleiða og birta efni og halda miðlunum lifandi í samstarfi við markaðsteymi. Starfið felur einnig í sér skipulagningu og framkvæmd viðburða á vegum Lauf og The Rift. Það getur verið allt frá smærri viðburðum eða vörukynningum, yfir í stærri sýningar og alþjóðlega hjólaviðburði.

Þannig krefst starfið m.a. kunnáttu á upptökubúnað og klippiforrit, skilning á þeim trendum sem eru í gangi og að vera með skapandi hugsun í fyrirrúmi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þú munt meðal annars:

  • Taka upp, klippa og framleiða myndbönd fyrir Meta, TikTok, YouTube og aðra miðla.
  • Skipuleggja og birta efni á öllum samfélagsmiðlum Lauf og The Rift.
  • Taka ljósmyndir og myndefni á viðburðum.
  • Sinna samskiptum við samfélag Lauf og The Rift á samfélagsmiðlum.
  • Vinna með íþróttafólki, áhrifavöldum og samstarfsaðilum Lauf í gegnum samfélagsmiðla.
  • Taka þátt í skipulagi og framkvæmd viðburða Lauf hérlendis sem og í Bandaríkjunum og Evrópu.
  • Vera hluti af kjarnateyminu á bak við The Rift, sem er ein af stærstu malarhjólakeppnum í heimi.
  • Ferðast með Lauf á valda viðburði í Bandaríkjunum og Evrópu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Reynsla af stjórnun samfélagsmiðla, klippingu, upptöku og útfærslu á efni.
  • Færni í að vinna sjálfstætt og skapandi hugsun.
  • Skipulagsfærni og sveigjanleiki er mikill kostur.
  • Sérlega góð enskukunnátta.
  • Reynsla af viðburðarhaldi er kostur, en ekki skilyrði.
Auglýsing birt22. september 2026
Umsóknarfrestur6. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grandagarður 1B, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.RitstýringPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TikTokPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ViðburðastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar