
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær leitar að verkefnastjóra til starfa við eignaumsýslu á umhverfis- og framkvæmdasviði. Starfið felur í sér verkefnastjórn nýframkvæmda og viðhalds fasteigna sveitarfélagsins, allt frá undirbúningi og áætlanagerð til eftirfylgni með framkvæmdum.
Við leitum að skipulögðum einstaklingi sem sýnir frumkvæði, vinnur sjálfstætt og á auðvelt með að eiga fagleg samskipti við ólíka aðila.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í störfum sínum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag og verkefnastjórn nýframkvæmda og stærri viðhaldsverkefna fasteigna.
- Gerð útboðsgagna, kostnaðar- og tímaáætlana og eftirfylgni með þeim.
- Þátttaka í undirbúningi og hönnun nýframkvæmda.
- Yfirferð og rýni hönnunargagna, tækniforskrifta, verktakasamninga og breytingabeiðna.
- Þátttaka í innkaupaferlum og mat á þjónustu og gæðum birgja.
- Samstarf og samskipti við verktaka, ráðgjafa og notendur mannvirkja.
- Þátttaka í fjárhagsáætlunargerð og þróun verkefna á sviðinu.
- Önnur verkefni í samráði við næsta yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í byggingarverkfræði, byggingartæknifræði eða byggingarfræði, eða sambærileg háskólamenntun er skilyrði.
- Sveinsbréf í iðn- eða tæknigrein er mikill kostur.
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
- Þekking og reynsla af byggingarframkvæmdum er skilyrði.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er skilyrði.
- Sjálfstæð vinnubrögð, góð skipulagshæfni og hæfni til ákvarðanatöku.
- Góð samskiptahæfni og almenn tölvukunnátta.
Fríðindi í starfi
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur15. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
ÁkveðniAlmenn tölvukunnáttaDrifkrafturFagmennskaMannleg samskiptiOpinber stjórnsýslaSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í framkvæmdareftirliti
EFLA hf

Verkefnastjórnun á byggingasviði
EFLA hf

Húsumsjón – húsvarsla hjá golfklúbbi
Golfklúbbur Klettar

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

Maintenance Worker – Full-Time / Minimum 6 Months
Hótel Dyrhólaey

Civil Society Fund Transnational Officer, Uppbyggingarsjóður EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Verkefnastjóri á Verkefnastofu
Norðurorka hf.

Verkefnastjóri fjárfestinga
Rio Tinto á Íslandi