Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Umsjónarmaður húseigna og búnaðar

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa til umsóknar 100% ótímabundna stöðu umsjónarmanns húseigna- og búnaðar. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjármála og reksturs. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur og frágangur kennslu og fundarrýma.

  • Umsjón og eftirlit með húsnæði, munum og lóð háskólans.

  • Aðstoð við nemendur og starfsfólk.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og þekking af hússtjórnar- og aðgangsstýrikerfum er æskileg.

  • Reynsla af notkun verkbeiðnakerfa.

  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.

  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum.

  • Góð almenn tölvukunnátta.

  • Gott vald á Íslensku og ensku máli.

  • Hreint sakavottorð er skilyrði.

  • Bílpróf er skilyrði.

  • Gerð er krafa um vammleysi, gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist eðli og ábyrgð starfsins.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.

  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins.

  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda.

Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurslóð 202123, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.ÚtkeyrslaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar