Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Tæknimaður á Akureyri

Langar þig að vinna í einu þekktasta brugghúsi landsins?

Víking Brugghús á Akureyri leitar að sjálfstæðum og drífandi einstaklingi til að hafa umsjón með og leiða viðhald á vélum og tæknibúnaði framleiðslunnar. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem þú kemur að uppsetningu, viðhaldi og endurnýjun framleiðslubúnaðar sem gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi brugghússins.

Helstu verkefni:

  • Uppsetning, viðhald og eftirlit með vélum og tæknibúnaði brugghússins
  • Ábyrgð á viðhaldskerfi fyrirtækisins
  • Endurnýjun á framleiðslubúnaði
  • Samskipti við innlenda og erlenda birgja
  • Innkaup og utanumhald varahluta
  • Viðhald fasteigna og lóðar fyrirtækisins

Við leitum að einstaklingi með:

  • Menntun og reynslu sem nýtist í starfi
  • Þjónustulund og góða samskiptahæfni
  • Frumkvæði og skipulagshæfni
  • Metnað og lausnamiðaða hugsun


Um Víking Brugghús

Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af Coca-Cola á Íslandi þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.

Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.

Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í s. 511 1225.

Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Furuvellir 17
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.VélvirkjunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar