
HS Orka
HS Orka er framsækið og ört vaxandi orkufyrirtæki sem byggir á sjálfbærri nýtingu auðlinda. Nýsköpun hefur ávallt verið hluti af kjarnastarfsemi HS Orku og er uppbygging Auðlindagarðsins þar í fyrirrúmi. Áhersla er lögð á að skapa tækifæri með fullnýtingu auðlindastrauma í takti við náttúruna og í sátt við samfélagið. Við erum í fararbroddi í orkuskiptum hér á landi og höfum sett okkur skýr og ábyrg markmið í loftslagsmálum.
Spennandi þróunarverkefni eru í undirbúningi á vegum fyrirtækisins, jafnt í jarðvarma sem vatnsafli, auk þess sem kostir vindorku eru til skoðunar til lengri tíma. Við erum þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins og framleiðum raforku í Svartsengisvirkjun, Reykjanesvirkjun, Brúarvirkjun, Fjarðarárvirkjunum og Múlavirkjun. Einnig seljum við heitt og kalt vatn til heimila og fyrirtækja á Suðurnesjum, auk annarra auðlindastrauma í Auðlindagarðinum. Við miðlum líka raforku frá fjölda sjálfstæðra orkuframleiðenda vítt og breytt um landið.
Við erum ótrúlega skemmtilegur hópur starfsfólks sem störfum í sveigjanlegu og fjölskylduvænu vinnuumhverfi þar sem heilbrigði, hollusta og vellíðan eru í öndvegi. Kaffið okkar er líka frábært! Mikil áhersla er lögð á lipurð í samskiptum, liðsheild og framsækni. Þannig náum við best markmiðum okkar um ábyrga auðlindanýtingu í sátt við samfélagið.
Við erum stærsta orkufyrirtæki landsins í einkaeigu. Eignarhaldið skiptist að jöfnu milli Jarðvarma, sem er samlagshlutafélag í eigu þrettán íslenskra lífeyrissjóða, og sjóða í stýringu Ancala, sjóðastýringafélags með höfuðstöðvar í Bretlandi.

Umhirða og þrif
HS Orka leitar að samviskusömum og öflugum einstaklingi til að sinna umhirðu og þrifum í virkjunum og á tengdum svæðum fyrirtækisins. Starfið er að mestu við Reykjanesvirkjun, en viðkomandi mun einnig sinna verkefnum í Svartsengi og á öðrum starfsstöðvum HS Orku eftir þörfum.
Starfið hentar einstaklingi sem hefur ánægju af því að hafa hlutina í góðu lagi, vinnur sjálfstætt og leggur metnað í snyrtilegt og öruggt starfsumhverfi. Virkjanaumhverfið gerir ríkar kröfur til öryggis og að farið sé eftir viðeigandi verkferlum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þrif og umhirða í orkuverum, stöðvarhúsum og öðrum tæknirýmum
- Umhirða á svæðum í og við virkjanir og tengd mannvirki
- Umsjón með vörum, áhöldum og búnaði sem tengist starfinu
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sýnir samviskusemi og áreiðanleika og vinnur sjálfstætt
- Hefur gott auga fyrir snyrtimennsku og sýnir frumkvæði
- Sýnir jákvæðni og verklagni og á auðvelt með samskipti og samvinnu
- Er tilbúinn til starfa í virkjanaumhverfi þar sem öryggi er ávallt í fyrirrúmi
Frekari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri, [email protected].
Auglýsing birt19. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Orkubraut 1, 240 Grindavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Housekeeping
Seljalandsfoss Horizons

Standsetning bíla / Car Cleaning – Keflavík Airport
Bílaleigan Berg - Sixt

Cleanroom Cleaning and Disinfection Senior Manager
Alvotech hf

Starfsfólk óskast í skaðaminnkandi úrræði fyrir konur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Viltu vinna í íþróttahúsi ?
ÍR

Herbergisþrif | Housekeeping
Hyatt Centric Reykjavík

Housekeeping (weekend daytime) Borgarnes
Panorama Glass Lodge

Herbergisþrif | Housekeeping
Íslandshótel

Kvöld og næturþrif / Night Cleaning Operative
NEWREST ICELAND ehf.

Vaktstjóri - Maika'i Kringlan
MAIKA'I

Þjónustustjóri(Service Manager) Óskast til starfa hjá iClean
iClean ehf.

Störf í ræstingum/ Cleaning jobs
Nói Síríus