Orkuvirki
Orkuvirki
Orkuvirki

Ert þú reynslumikill vélvirki eða vélstjóri?

Orkuvirki óskar eftir því að ráða öflugan vélvirkja í fullt starf við framleiðslu, uppsetningu, viðhald og þjónustu. Við leitum að fagmanni sem vinnur sjálfstætt, er lausnarmiðaður, leggur metnað í frágang og veit að gæði og öryggi byggjast á góðum vinnubrögðum frá upphafi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna við töflusmíði
  • Uppsetning á vél- og rafbúnaði
  • Þjónusta við vélræna hluta háspennubúnaðar
  • Tryggja fagleg vinnubrögð og vandaðan frágang
  • Gæta öryggis og réttrar meðferðar efnis, verkfæra og búnaðar
  • Deila þekkingu og stuðla að góðu samstarfi innan teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í vélvirkjun eða vélstjórn
  • Starfsreynslu sem véliðnaðarmaður í iðnaðarumhverfi
  • Það er kostur að hafa reynslu af samsetningu vélbúnaðar
  • Það er kostur að hafa hæfni í almennri járnsmíði og járnsuðu
  • Fagleg og nákvæm vinnubrögð
  • Frumkvæði, sjálfstæði
  • Öryggisvitund og ríka ábyrgðarkennd
  • Gild ökuréttindi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi

·      Frábæran starfsandi og öflugt teymi

·      Fjölbreytt og krefjandi verkefni

·      Tækifæri til að vaxa í starfi

·      Verkfæri og viðeigandi fatnaður

·      Niðurgreiddur hádegisverður

·      Íþróttastyrkur

Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tunguháls 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Vélvirkjun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar