
Orkuvirki
Orkuvirki er leiðandi í hönnun, framleiðslu og uppsetningu á búnaði fyrir orkuiðnað. Við byrjuðum sem hefðbundið verktakafyrirtæki en erum núna háþróað leiðandi tæknifyrirtæki sem kemur að öllu ferlinu – frá hugmynd og hönnun til framkvæmdar og reksturs með fagmennsku, lausnahugsun og sveigjanleika að vopni.
Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga; verk- og tæknimenntaðir, iðnaðarmenn og sérhæfðir verkamenn. Við erum nú um fimmtíu og fer fjölgandi, enda verkefnin næg, fjölbreytt og krefjandi.
Meginstarfsemi okkar er í orkugeiranum og iðnaði og felst í hönnun, framleiðslu, uppsetningu og reksturs tæknibúnaðar af ýmsu tagi. Við vinnum með öllum helstu orkufyrirtækjum landsins, bæði framleiðendum og dreifingaraðilum, auk fjölda fyrirtækja í öllum geirum þar sem orka leikur lykilhlutverk: gagnaverum, fiskeldi og öðrum framsæknum framleiðslu- og tæknifyrirtækjum.
Fjölbreytni verkefna er okkar styrkur og eflir okkur til aukins verkvits og frekari dáða.
Við leggjum áherslu á öruggt og gott starfsumhverfi og góðan starfsanda. Hjá Orkuvirki gefst metnaðarfullu fólki með ólíkan tæknibakgrunn tækifæri til að fylgja stórum og viðamiklum verkefnum alla leið, og vaxa og þroskast á sínu sviði um leið.

Ert þú reynslumikill rafvirki sem vilt skila verki sem þú getur verið stolt(ur) af?
Orkuvirki óskar eftir því að ráða öflugan rafvirkja í fullt starf við framleiðslu, uppsetningu, viðhald og þjónustu. Við leitum að fagmanni sem vinnur sjálfstætt, er lausnarmiðaður, leggur metnað í frágang og veit að gæði og öryggi byggjast á góðum vinnubrögðum frá upphafi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við framleiðslu, uppsetningu og þjónustu
- Vinna við háspennu, millispennu og lágspennu
- Bilanagreining og viðgerðir
- Tryggja fagleg vinnubrögð og vandaðan frágang
- Gæta öryggis og réttrar meðferðar efnis, verkfæra og búnaðar
- Deila þekkingu og stuðla að góðu samstarfi innan teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun
- Starfsreynslu sem rafvirki
- Fagleg og nákvæm vinnubrögð
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Öryggisvitund og rík ábyrgðarkennd
- Gild ökuréttindi
- Hreint sakavottorð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Frábær starfsandi og öflugt teymi
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Tækifæri til að vaxa í starfi
- Verkfæri og viðeigandi fatnaður
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Íþróttastyrkur
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Tunguháls 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðÖkuréttindiRafvirkjunSveinspróf
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Ert þú reynslumikill flokkstjóri sem leiðir fólk og tekur þátt í verkinu
Orkuvirki

Starfsmaður í Þjónustudeild
Landstólpi ehf

Pávers leitar að rafvirkja
Pávers ehf

Production Specialist - Electric
DTE

Umsjónarmaður - Umsjón fasteigna
Félagsstofnun stúdenta

Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir starfsmanni í TextílLab
Textílmiðstöð Íslands

TÆKNIMAÐUR Í TÆKNIDEILD BVT
Bako Verslunartækni

Tæknimaður – rafvirki
Enercon

Starfsmaður í áhaldahús Reykhólahrepps
Reykhólahreppur

RAFVIRKI / RAFMAGNSSÉRFRÆÐINGUR
atNorth

Tæknimaður / Maintenance Technician
Alvotech hf

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning