Orkuvirki
Orkuvirki
Orkuvirki

Ert þú sérfræðingur í hönnun og tækni?

Orkuvirki leitar að reynslumiklum hönnuði í fullt starf við tæknilega hönnun og gerð teikninga og tæknigagna.

Við leitum að einstaklingi sem sameinar nákvæmni, tæknilegan skilning og lausnamiðaða hugsun. Þú vinnur náið með verkefnastjórum, sérfræðingum og starfsfólki framleiðslu að öruggum, hagkvæmum og vönduðum lausnum.

Hjá okkur færð þú að vinna úr hönnunarforsendum, útfæra lausnir og útbúa skýr gögn sem nýtast þeim sem framleiða, setja upp og viðhalda búnaðinum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rýna hönnunarforsendur og gögn frá verkkaupum
  • Hanna og útfæra tæknilegar lausnir
  • Útbúa og uppfæra teikningar og tæknigögn
  • Samræma hönnun við kröfur verkefna og aðstæður við framkvæmd
  • Yfirfara eigin hönnun og fylgja eftir tæknikröfum og stöðlum
  • Forritun á varnarliðum og sjálfvirkni í spennustöðvum 
  • Prófanir á háspennubúnaði og varnarprófanir
  • Vinna með hönnunarbreytingar og tryggja rekjanleika gagna
  • Útbúa lokagögn og leggja til umbætur á lausnum og vinnubrögðum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í verkfræði, tæknifræði eða iðnfræði á sviði rafmagns, véla, orku eða iðnaðar.
  • Reynslu af tæknilegri hönnun og úrlausn verkefna
  • Reynslu í notkun á hönnunar- og teikniforritum á borð við EPLAN og ECAD
  • Þekkingu á IEC-61850 er kostur
  • Þekkingu á viðeigandi tæknikröfum, stöðlum og yfirferð hönnunar
  • Skilning á framleiðslu, uppsetningu, prófunum og viðhaldi
  • Hæfni til að miðla hönnunarforsendum og lausnum skýrt
  • Nákvæmni, greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
  • Góða samstarfshæfni og metnað fyrir hagnýtum lausnum
  • Gild ökuréttindi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi

·      Frábær starfsandi og öflugt teymi

·      Fjölbreytt og krefjandi verkefni

·      Traust og sjálfstæði í starfi

·      Tækifæri til að vaxa í starfi

·      Sveigjanlegan vinnutíma

·      Niðurgreiddan hádegisverð

·      Íþróttastyrkur

Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tunguháls 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar