
Orkuvirki
Orkuvirki er leiðandi í hönnun, framleiðslu og uppsetningu á búnaði fyrir orkuiðnað. Við byrjuðum sem hefðbundið verktakafyrirtæki en erum núna háþróað leiðandi tæknifyrirtæki sem kemur að öllu ferlinu – frá hugmynd og hönnun til framkvæmdar og reksturs með fagmennsku, lausnahugsun og sveigjanleika að vopni.
Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga; verk- og tæknimenntaðir, iðnaðarmenn og sérhæfðir verkamenn. Við erum nú um fimmtíu og fer fjölgandi, enda verkefnin næg, fjölbreytt og krefjandi.
Meginstarfsemi okkar er í orkugeiranum og iðnaði og felst í hönnun, framleiðslu, uppsetningu og reksturs tæknibúnaðar af ýmsu tagi. Við vinnum með öllum helstu orkufyrirtækjum landsins, bæði framleiðendum og dreifingaraðilum, auk fjölda fyrirtækja í öllum geirum þar sem orka leikur lykilhlutverk: gagnaverum, fiskeldi og öðrum framsæknum framleiðslu- og tæknifyrirtækjum.
Fjölbreytni verkefna er okkar styrkur og eflir okkur til aukins verkvits og frekari dáða.
Við leggjum áherslu á öruggt og gott starfsumhverfi og góðan starfsanda. Hjá Orkuvirki gefst metnaðarfullu fólki með ólíkan tæknibakgrunn tækifæri til að fylgja stórum og viðamiklum verkefnum alla leið, og vaxa og þroskast á sínu sviði um leið.

Hefur þú reynslu af að leiða tæknileg verkefni og halda utan um fólk, framvindu og fjármál?
Orkuvirki leitar að reynslumiklum verkefnastjóra í fullt starf. Þú leiðir verkefni frá undirbúningi til verkloka og fylgir því eftir að umfang, gæði, öryggi, tími og kostnaður haldist í hendur.
Við leitum að einstaklingi sem sér heildarmyndina, tekur á málum tímanlega og skapar skýrleika í samstarfi við viðskiptavini og verkefnateymi.
Í starfinu heldur þú utan um skipulag og framkvæmd verkefna, samræmir framlag ólíkra sviða og tryggir markvissa eftirfylgni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rýna verkgögn og undirbúa verkefni
- Gera tíma-, kostnaðar- og aðfangaáætlanir og fylgja þeim eftir
- Samræma vinnu verkefnateymis, birgja og undirverktaka
- Annast samskipti við viðskiptavini og aðra hagaðila
- Fylgjast með fjármálum verkefna, breytingum og aukaverkum
- Samræma hönnunargögn og tæknilegar úrlausnir
- Fylgja eftir kröfum um gæði, vinnuvernd og umhverfismál
- Halda utan um afhendingu, lokagögn og uppgjör verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í verkfræði, tæknifræði eða iðnfræði á sviði rafmagns, véla og orku eða iðnðaðar. Viðbótanám í verkefnastjórnun er kostur.
- Reynslu af stjórnun og framkvæmd tæknilegra verkefna
- Þekkingu á áætlanagerð, samningum, breytingastjórnun og uppgjöri verkefna
- Færni í að vinna með tæknigögn, teikningar og verklýsingar
- Leiðtogahæfni og getu til að samræma vinnu þvert á svið
- Góðan skilning á kostnaði, áhættu og áhrifum ákvarðana
- Skipulagshæfni, samningafærni og getu til að leysa úr ágreiningi
- Gild ökuréttindi
- Hreint sakavottorð
- Góða íslensku- og enskukunnáttu
Fríðindi í starfi
· Frábær starfsandi og öflugt teymi
· Fjölbreytt og krefjandi verkefni
· Traust og sjálfstæði í starfi
· Tækifæri til að vaxa í starfi
· Sveigjanlegan vinnutíma
· Niðurgreiddan hádegisverð
· Íþróttastyrkur
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Tunguháls 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
SkipulagVerkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Ert þú sérfræðingur í hönnun og tækni?
Orkuvirki

Verkefnastýri viðburða og félagsstarfs
Samtökin '78

Verk- eða tæknifræðingur í stjórnendastarf
Brú Talent ehf.

Verkefnastjóri menntunar, menningar- og lýðheilsusviðs
Hveragerðisbær

Sérfræðingur í hönnun samgöngumannvirkja
COWI

Hugbúnaðarsérfræðingur
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Expert Specialist, Project Management
Alvotech hf

Fleet manager
Icelandair

Verkefnastjóri, gæðatrygging (Quality Assurance Project Manager)
Ísteka

Sérfræðingur, gæðatrygging (Quality Assurance Specialist)
Ísteka

Verkefnastjóri Verkefnahúss
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Sérfræðingur í siglingaöryggi
Samgöngustofa