

Umsjónarmaður - Umsjón fasteigna
Félagsstofnun stúdenta leitar að Umsjónarmanni til starfa hjá Umsjón Fasteigna. Umsjónarmaður er í samskiptum við íbúa Stúdentagarða. Viðkomandi sinnir úttektum á húsnæði Stúdentagarða við leiguskil og metur ástand þess. Umsjónarmaður útdeilir verkefnum til iðnaðarmanna eftir þörfum og hefur umsjón með samskiptum við verktaka. Hann er einnig staðgengill Rekstrarstjóra í fjarveru hans.
Umsjónarmaður þarf að búa yfir góðri tölvukunnáttu og framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
- Samskipti við íbúa Stúdentagarða og þjónusta vegna fyrirspurna, viðgerðarbeiðna og úttekta á íbúðum
- Eftirlit með ástandi íbúða og sameigna, daglegt viðhald og eftirfylgni með viðgerðum og úrbótum.
- Útdeiling verkefna til starfsfólks og verktaka
- Umsjón með tjónamálum, meindýravörnum og viðgerðum vegna tjóna.
- Umsjón með tæknikerfum og búnaði fasteigna, svo sem brunakerfum, loftræstikerfum og djúpgámakerfum.
- Umsjón með lyklum og aðgangsstýringum, þar á meðal aðgangskortum og NFC-doppum
- Leysir rekstrarstjóra af þegar við á
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi er skilyrði
- Rík þjónustulund og framúrskarandi samskiptahæfni er skilyrði
- Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
- Lausnamiðað og jákvætt viðhorf
- Snyrtimennska
- Samviskusemi
- Skipulagshæfni
- Góð íslensku og enskukunnátta er skilyrði
- Góð tölvukunnátta, þ.m.t. á Microsoft Office er skilyrði
Starfsfólk Félagsstofnunar stúdenta nýtur ýmissa fríðinda, meðal annars íþróttastyrks og afsláttakjara í Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og Hámu.
FS er einnig með öflugt starfsmannafélag sem stendur fyrir fjölbreyttum viðburðum og uppákomum, þar á meðal árshátíðarferðum erlendis annað hvert ár.
Íslenska
Enska










