Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Umsjónarmaður véla og tækja

Við leitum að fjölhæfum einstaklingi til að bætast í hópinn hjá véla og tækjateyminu á rekstrardeild Vegagerðarinnar.

Á rekstrardeild starfa um 14 manns og þar af þrír í vélum og tækjum. Rekstrardeild er þjónustudeild þar sem mikið er lagt upp úr góðri liðsheild, ríkri þjónustulund og lausnamiðaðri nálgun. Deildin þjónustar verkstæði Vegagerðarinnar um allt land, ásamt fasteignum, vöruinnkaupum og birgðastýringu. Vegagerðin er með 18 starfsstöðvar, starfsemi rekstrardeildar er í Garðabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Útvega varahluti í vélar og tæki, í samráði við verkstæðisformenn og yfirverkstjóra á þjónustustöðvum.
  • Ráðgjöf og fræðsla um umhirðu og notkun tækjabúnaðar Vegagerðarinnar.
  • Eftirlit með notkun og viðhaldi tækjabúnaðar Vegagerðarinnar.
  • Aðstoð við gerð viðhaldsáætlana fyrir tækjabúnað.
  • Ástandsskoðun á vélum og tækjum á starfsstöðvum Vegagerðarinnar.
  • Almenn verkefni tengd rekstri véla og tækja.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking á vélum og tækjabúnaði, einkum þeim er varða vegaþjónustu s.s. vegheflum, dreifurum, snjótönnum ásamt vökvakerfum og varahlutum er æskileg.
  • Sveinspróf í vélvirkjun, bifvélavirkjun, eða sambærileg menntun er kostur.
  • Mikil samskiptafærni, lausnamiðuð nálgun, hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp.
  • Almenn ökuréttindi, C- og E-réttindi eru kostur.
  • Hæfni til að nota tölvur og stafrænar lausnir í starf.
  • Gott vald á íslensku og ensku.
  • Góð öryggisvitund.
Auglýsing birt4. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar