

Bifvélavirkjanemi hjá Öskju
Langar þig að byggja upp sterkan grunn fyrir framtíðina í bifvélagreininni og læra af reynslumiklu fagfólki?
Hjá Öskju færðu tækifæri til að þróast í starfi, öðlast dýrmæta reynslu og vinna með nokkrum af fremstu vörumerkjum bílaiðnaðarins. Við leitum að metnaðarfullum og drífandi bifvélavirkjanema sem hafa áhuga á að vaxa í starfi og taka þátt í öflugu teymi fagfólks.
Askja leggur mikla áherslu á góða móttöku, þjálfun og stuðning við nema. Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu frá Nemastofu fyrir framúrskarandi fræðslu og þjálfun í bifvélavirkjun.
Sem bifvélavirkjanemi hjá Öskju færðu tækifæri til að vinna við þjónustu, greiningu og viðgerðir á Mercedes-Benz, Kia, Honda, smart og Xpeng bifreiðum undir handleiðslu reynslumikilla sérfræðinga.
- Aðstoð við þjónustu og viðgerðir á bifreiðum
- Greining og bilanaleit undir leiðsögn fagfólks
- Þátttaka í daglegum verkefnum verkstæðisins
- Viðhald vinnuaðstöðu og verkfæra
- Að fylgja verklagi, gæðakröfum og öryggisstöðlum fyrirtækisins
- Virk þátttaka í námi og starfsþjálfun
- Nám í bifvélavirkjun
- Jákvætt viðmót og áhugi á faginu
- Rík þjónustulund og góð samstarfshæfni
- Fagleg og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi og góð skólasókn
- Vilji til að læra og taka framförum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Enska
Íslenska










