Securitas
Securitas
Securitas

Tæknistarf í slökkvitækjaþjónustu á Akureyri

Viltu vinna á skemmtilegum vinnustað?

Við hjá Securitas leitum að kraftmiklum einstakling til að slást í teymið og takast á við fjölbreytt verkefni sem við kemur slökkvitækjum og slökkvibúnaði. Lögð er rík áhersla á vönduð vinnubrögð, jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu, sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.

Ef þú...

  • Ert tilbúin að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • ert lausnamiðuð/aður og sýnir sjálfstæði í starfi
  • Hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku

... Þá erum við að leita að þér!

Í boði er fullt starf sem hentar öllum sem eru með hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.

Um er að ræða fullt starf þar sem unnið er alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00, stytting vinnuvikunnar er á föstudögum.

Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember næstkomandi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgir Már, deildarstjóri í síma 580-7000.

Auglýsing birt20. nóvember 2026
Umsóknarfrestur30. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tryggvabraut 10, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar