Fastus
Fastus

Þjónustufulltrúi í hjálpartækjateymi

Fastus óskar eftir að ráða lausnamiðaðan og skipulagðan einstakling í nýtt starf þjónustufulltrúa í hjálpartækjateymi. Eftirspurn eftir hjálpartækjum eykst jafnt og þétt og við viljum mæta þeirri þróun með framúrskarandi þjónustu.

Þjónustufulltrúinn verður fyrsti tengiliður viðskiptavina okkar, í síma, í tölvupósti og í verslun. Þar sem um nýtt hlutverk er að ræða færð þú tækifæri til að þróa starfið með okkur, byggja upp verklag og hafa bein áhrif á hvernig við þjónustum viðskiptavini, aðstandendur og heilbrigðisstarfsfólk. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Símsvörun og svör við fyrirspurnum
  • Móttaka viðskiptavina og aðstandenda í verslun, kynning á vörum og almenn ráðgjöf
  • Umsjón með bókunardagatali verslunar
  • Úrvinnsla samþykkta frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) og útgáfa sölupantana
  • Leiðbeiningar til viðskiptavina og aðstandenda um umsóknarferli SÍ
  • Afgreiðsla og greiðslumóttaka
  • Skráning erinda og reglubundin eftirfylgni með opnum pöntunum
  • Þátttaka í þróun verkferla og fjölbreyttum verkefnum teymisins

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Rík þjónustulund, þolinmæði og hlýja í samskiptum
  • Reynsla af símsvörun, þjónustu- og afgreiðslustörfum
  • Reynsla úr heilbrigðisþjónustu (t.d. sjúkraliði eða heilbrigðisritari) og þekking á ferlum SÍ er kostur
  • Góð tölvufærni; þekking á NAV/Business Central er kostur
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Yfirvegun og fagmennska í samskiptum
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti; enskukunnátta er kostur

Um Fastus
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Hjá Fastus starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fagfólks þar sem lausnamiðað hugarfar, þverfaglegt samstarf og frumkvæði eru metin mikils. Mikilvægt er að starfsfólk geti lagað sig að síbreytilegu umhverfi. Innan félagsins starfar kraftmikið starfsmannafélag sem stuðlar að góðri liðsheild og jákvæðum starfsanda.

Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni og uppruna, eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veita Vilborg Þórðardóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).

Auglýsing birt10. nóvember 2026
Umsóknarfrestur25. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SjúkraliðiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar