

Viðskiptaráðgjafi – innleiðing og þjónusta
Elvo er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í hröðum vexti. Við sameinum samskipti við viðskiptavini á einum stað og nýtum gervigreind til að einfalda þjónustu, bæta yfirsýn og auðvelda eftirfylgni. Í dag nota yfir 40 íslensk fyrirtæki Elvo, þar á meðal Samskip, Olís, Tix, World Class, Brauð & Co, Distica og Kemi.
Við leitum að drifnum og úrræðagóðum viðskiptaráðgjafa sem vill taka ábyrgð á innleiðingu og þjónustu við viðskiptavini Elvo og styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins. Þú hjálpar fyrirtækjum að komast hratt og örugglega af stað, styður starfsfólk í daglegri notkun og fylgir því eftir að lausnin skili raunverulegum árangri.
Innleiðing og þjónusta eru kjarninn í starfinu. Samhliða þeim tekur þú þátt í að skapa ný viðskiptatækifæri með því að hafa samband við mögulega viðskiptavini, kynna Elvo og bóka fundi fyrir söluteymið. Umfang þeirra verkefna tekur mið af álagi í innleiðingu og þjónustu.
Þú vinnur þétt með framkvæmdastjóra, sölu- og þróunarteymi og færð mikið svigrúm til að móta hlutverkið. Hjá okkur eru boðleiðir stuttar, ákvarðanir teknar hratt og góðar hugmyndir komnar í framkvæmd fljótt.
• Innleiðing hjá nýjum viðskiptavinum: Taka við viðskiptavinum í framhaldi af sölu, greina þarfir þeirra og leiða uppsetningu, þjálfun og fyrstu skrefin í Elvo.
• Þjónusta og eftirfylgni: Vera lykiltengiliður viðskiptavina, svara spurningum, leysa úr málum og fylgja eftir að Elvo nýtist í daglegu starfi.
• Þjálfun og ráðgjöf: Kenna starfsfólki á kerfið og hjálpa teymum að bæta vinnubrögð, nýta gervigreind og ná betri yfirsýn yfir samskipti við viðskiptavini.
• Fundabókun og stuðningur við sölu: Hafa samband við mögulega viðskiptavini í síma og tölvupósti, einnig fyrirtæki sem hafa ekki áður verið í sambandi við Elvo. Kynna lausnina, fylgja eftir áhuga og bóka kynningarfundi fyrir söluteymið.
• Uppbygging ferla og leiðbeininga: Þróa skilvirkt innleiðingarferli og útbúa stuttar leiðbeiningar, myndbönd og svör við algengum spurningum.
• Samstarf við sölu og þróun: Koma þörfum og ábendingum viðskiptavina í skýran farveg, fylgja tæknilegum málum eftir með þróunarteyminu og greina tækifæri til frekari nýtingar Elvo.
• Góð samskiptafærni og þjónustulund. Þú átt auðvelt með að byggja upp traust og útskýra hluti á skýran hátt.
• Tæknilegur áhugi og geta til að læra á ný kerfi. Áhugi á gervigreind og hvernig hún nýtist í daglegu starfi.
• Sjálfstæði, skipulag og eftirfylgni. Þú tekur frumkvæði og tryggir að verkefni klárist.
• Áhugi á sölu. Þú átt auðvelt með að hefja samtöl, taka upp símann og búa til tækifæri.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
Reynsla af þjónustu, innleiðingu kerfa eða sölu er kostur. Menntun sem nýtist í starfi er einnig kostur, en praktísk færni og rétt hugarfar vega þyngst.
• Bein áhrif: Þú færð ábyrgð á mikilvægum hluta starfseminnar og mótar hvernig Elvo tekur á móti og þjónustar viðskiptavini sína.
• Nálægð við vöruna: Þú vinnur beint með fólkinu sem þróar Elvo og getur haft áhrif á hvernig lausnin þróast út frá raunverulegum þörfum viðskiptavina.
• Fjölbreytt starf og tækifæri til að vaxa: Þú byggir upp þekkingu á hugbúnaði, gervigreind, þjónustu og sölu og kynnist rekstri fyrirtækja í ólíkum atvinnugreinum. Með vexti Elvo skapast tækifæri til aukinnar ábyrgðar.
• Sjálfstæði og stuttar boðleiðir: Þú færð svigrúm til að skipuleggja vinnuna, taka ákvarðanir og sjá beinan árangur af þínu framlagi.
• Sveigjanleiki: Við leggjum áherslu á árangursríkar innleiðingar og ánægða viðskiptavini og veitum þér svigrúm til að skipuleggja vinnuna.
Íslenska










