
Vörustjóri með þekkingu á hjálpartækjum
Fastus óskar eftir að ráða lausnamiðaðan og öflugan einstakling í fullt starf við ráðgjöf og sölu á tækjabúnaði fyrir heilbrigðisgeirann með áherslu á sjúkraþjálfunar- og hjálpartæki.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, bæði í samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk, notendur og stofnanir og við innleiðingu og kynningu á lausnum sem stuðla að betri meðferð og bættri þjónustu. Hlutverkið er í þróun og færð þú tækifæri til að móta það með okkur.
Viðkomandi þarf að hafa metnað til að byggja upp traust viðskiptasambönd og áhuga á því að vinna með hágæðavörur frá leiðandi framleiðendum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ráðgjöf og sala á hjálpartækjum
- Þjálfun og innleiðing lausna til viðskiptavina
- Samskipti við heilbrigðisstarfsfólk, notendur, birgja og aðra hagaðila
- Vinna við útboð og rammasamninga
- Leita að nýjum sóknarfærum á vaxandi markaði
- Kynningar, sýningar og ráðstefnur innanlands og erlendis
- Önnur spennandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Heilbrigðismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og/eða reynsla af hjálpartækjum er kostur
- Þekking á ferlum Sjúkratrygginga Íslands er kostur
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Um Fastus
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Hjá Fastus starfar fjölbreyttur og samstilltur hópur fagfólks þar sem lausnamiðað hugarfar, þverfaglegt samstarf og frumkvæði eru metin mikils. Mikilvægt er að starfsfólk geti lagað sig að síbreytilegu umhverfi. Innan félagsins starfar kraftmikið starfsmannafélag sem stuðlar að góðri liðsheild og jákvæðum starfsanda.
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni og uppruna, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Vilborg Þórðardóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).
Íslenska
Enska