

Verkefnastjóri stjórnunarkerfa og gæðamála
Viltu móta stjórnunarkerfi framtíðarinnar hjá Landsneti? Sérðu einfaldar lausnir í flóknum kerfum?
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á umbótum, einföldun og því að láta flókin kerfi virka betur fyrir fólkið sem notar þau.
Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem vill hafa raunveruleg áhrif á hvernig Landsnet vinnur. Þú færð svigrúm til að þróa samþætt stjórnunarkerfi fyrirtækisins, tengja saman fólk, ferla, kröfur og tækni og hjálpa okkur að gera góða hluti enn betur.
Starfið snýst ekki aðeins um að viðhalda kerfi. Það snýst um að móta, einfalda og bæta. Þú vinnur þvert á fyrirtækið með stjórnendum, ferlaeigendum og faglegum sérfræðingum að því að breyta flóknum kröfum í skýrar og framkvæmanlegar lausnir. Þú greinir jafnframt hvernig gögn, sjálfvirkni, gervigreind og önnur stafræn verkfæri geta aukið yfirsýn, einfaldað eftirfylgni og dregið úr handvirkri umsýslu.
Hvað felst í starfinu?
- Leiða þróun og rekstur samþætts stjórnunarkerfis Landsnets.
- Samhæfa sameiginlega þætti staðla, laga, reglna og innri krafna.
- Vinna með sérfræðingum og eigendum ferla að einfaldari og samræmdari framkvæmd.
- Stuðla að því að frávik, úttektir, stjórnendarýni, aðgerðir og mælikvarðar myndi eina skýra heild.
- Greina og leiða umbætur sem auka skilvirkni og rekjanleika.
- Nýta gögn og stafrænar lausnir til að styrkja yfirsýn og eftirfylgni.
- Vera tengiliður gagnvart vottunaraðilum og samhæfa innri og ytri úttektir.
- Stuðla að menningu lærdóms, samvinnu og stöðugra umbóta.
Hverjum leitum við að?
Við leitum að einstaklingi sem sér heildarmyndina, kann að vinna með ólíku fólki og hefur kraft og hugrekki til að koma góðum hugmyndum í framkvæmd.
- Þú hefur reynslu af stjórnunarkerfum, ferlastjórnun, umbótum, verkefnastjórnun, breytingastjórnun eða sambærilegum verkefnum.
- Þú þekkir ISO-staðla, innra eftirlit, úttektir eða aðra kröfuramma.
- Þú átt auðvelt með að greina þarfir og umbreyta flóknum viðfangsefnum í einfaldar lausnir.
- Þú hefur góðan tæknilegan skilning og áhuga á nýjum vinnubrögðum.
- Þú getur leitt verkefni og haft áhrif án formlegra mannaforráða.
- Þú býrð yfir lausnamiðaðri hugsun, forvitni og sjálfstæði í verkum.
Af hverju Landsnet?
Hjá okkur færðu tækifæri til að móta hlutverk sem skiptir máli fyrir allt fyrirtækið. Þú vinnur með öflugu fagfólki og færð að tengja saman rekstrarþarfir, sérfræðiþekkingu og tæknilega möguleika.
Markmiðið er skýrt: að skapa stjórnunarkerfi sem auðveldar fólki að vinna rétt, veitir betri yfirsýn og gerir okkur kleift að verja meiri tíma í verkefni og umbætur sem skapa raunverulegt virði.
Ef þú sérð tækifæri þar sem aðrir sjá flækjur og hefur gaman af því að breyta góðum hugmyndum í raunverulegar umbætur, þá viljum við heyra frá þér.
Umsóknarfrestur er til og með 4. október.
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn.
Sótt er um starfið á landsnet.is. Nánari upplýsingar veitir Sara Lind Guðbergsdóttir Forstöðumaður lögfræði og stjórnkerfa á [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Íslenska










