

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Við leitum að metnaðarfullum og ábyrgum liðsfélaga til að styrkja teymi sérfræðinga sem sinnir rekstri stjórn- og varnarbúnaðar og sjálfvirknivæðingu í flutningskerfi raforku. Hlutverk teymisins er að undirbúa Landsnet fyrir framtíðina – hvort sem það felur í sér nýja tækni, aukinn raforkuflutning, nýja viðskiptavini eða breyttar áherslur í orkumálum.
Landsnet er framarlega í notkun stafrænna lausna í orkuflutningi. Í starfinu sameinast rafmagnsþekking og verkleg vinna við stillingar og prófanir á stjórn- og varnarbúnaði í tengivirkjum. Þú tekur þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg samfélagsáhrif og styður við stafræna þróun flutningskerfisins.
Helstu verkefni
- Rekstur og eftirlit með stjórn- og varnarbúnaði.
- Innleiðing nýrrar tækni í stjórn- og varnarbúnaði raforkukerfa.
- Verkleg vinna á vettvangi, m.a. mælingar, prófanir og uppsetning búnaðar.
- Þátttaka í greiningu gagna og upplýsinga til að bæta rekstur og öryggi.
Hæfni og reynsla
- Menntun á sviði rafiðn-, rafmagnstækni- eða rafmagnsverkfræði. Marktæk starfsreynsla getur komið í stað formlegrar menntunar.
- Þekking og reynsla í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar og/eða raforkukerfum er kostur.
- Reynsla og þekking á háspennubúnaði er kostur.
- Góð hæfni í uppbyggilegum samskiptum og samvinnu.
Við bjóðum þér
- Tækifæri til að hafa áhrif á samfélagslega mikilvæg verkefni og móta stafrænan rekstur flutningskerfisins.
- Gott vinnuumhverfi þar sem áhersla er á faglegan stuðning og þjálfun.
- Góð aðstaða á vinnustaðnum, m.a. líkamsrækt og mötuneyti.
- Samstarf við fjölbreytt, áhugasamt og þekkingarmikið starfsfólk.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september.
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn.
Sótt er um starfið á landsnet.is. Nánari upplýsingar veitir Arna Kristín Sigurðardóttir, mannauðssérfræðingur, á [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Íslenska










