
STOÐ
STOÐ er sérhæft þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði heilbrigðis og rannsókna. Fyrirtækið veitir heildstæðar lausnir sem styðja fagfólk, styrkja heilbrigðiskerfið, efla rannsóknir og bæta lífsgæði einstaklinga. Þannig erum við mikilvæg stoð einstaklinga, heilbrigðisþjónustu og rannsókna.
Stoð sameinaðist systurfélagi sínu MEDOR í mars 2026 undir nafninu STOÐ og byggir starfsemin á sterkum grunni þekkingar, reynslu og sérhæfingar. Fyrirtækið sameinar annars vegar áratugalanga reynslu í stoðtækjasmíði, ráðgjöf og lausnum sem styðja fólk í daglegum athöfnum og hins vegar djúpa sérþekkingu í sölu, ráðgjöf og þjónustu á hágæða lækningatækjum og hjúkrunar- og rannsóknarvörum.
Vöru- og þjónustuframboð STOÐAR spannar allt frá háþróuðum tækjum og rekstrarvörum fyrir heilbrigðisstofnanir til lausna fyrir einstaklinga, svo sem stoðtækja, hjálpartækja og hjúkrunarvara.
STOÐ byggir starfsemi sína á gildum um hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika og leggur áherslu á langtímasamstarf og lausnir sem skapa raunverulegt virði.

Tæknimaður
Viltu vinna með hátæknibúnað sem styður við heilbrigðisþjónustu og rannsóknir um allt land?
STOÐ leitar að úrræðagóðum tæknimanni til starfa í þjónustu- og tæknideild fyrirtækisins. Starfið felur í sér uppsetningu, fyrirbyggjandi viðhald, bilanagreiningu og viðgerðir á sérhæfðum rannsóknar- og lækningatækjum hjá viðskiptavinum um land allt.
Starfið er fjölbreytt og snertir margvíslegan tæknibúnað, svo sem laminar flow skápa, biological safety skápa, CO₂-ræktunarskápa og aðra ræktunar- og hitaskápa, autoklava, frysta, kæla og annan sérhæfðan búnað á rannsóknarstofum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning og gangsetning búnaðar
- Fyrirbyggjandi viðhald, reglubundnar þjónustuskoðanir og gæðamælingar
- Bilanagreining og viðgerðir
- Tækniaðstoð og fagleg þjónusta við viðskiptavini
- Tæknileg ráðgjöf og samvinna með söluteymum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tæknimenntun, svo sem rafvirkjun, rafeindavirkjun, vélvirkjun eða sambærileg menntun
- Reynsla af viðhaldi, bilanagreiningu og viðgerðum tæknibúnaðar er kostur
- Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný tæknikerfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð
- Færni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
- Gilt ökuskírteini
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur23. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFrumkvæðiMannleg samskiptiNýjungagirniÖkuréttindiRafvirkjunSjálfstæð vinnubrögðVélvirkjunÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Johan Rönning, Akureyri leitar að öflugum söluráðgjafa
Johan Rönning

Vélvirki
Nói Síríus

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun

Starfsmaður á vélaverkstæði Akureyri
Vegagerðin

Vélvirkjar/Vélstjórar/ Stálsmiðir-Mechanics/Steelwo.
HD Iðn- og tækniþjónusta

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Rekstrarstjóri Tækjaverkstæðis - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Maintenance Technician | Össur
Embla Medical | Össur

Öflugt viðgerðarfólk á verkstæði Vélafls
Vélafl ehf