
Kraftur hf.
Kraftur ehf sem fagnar 60 ára afmæli á árinu hefur verið umboðsaðili fyrir MAN á Íslandi og höfum við upp á að bjóða mikið úrval af vörubílum og rútum.
MAN hefur fyrir löngu sannað ágæti sitt við Íslenskar aðstæður. . Við bjóðum einnig upp á götusópa í ýmsum stærðum frá Bucher Municipal, einum þekktasta framleiðanda á þessu sviði. Þá hefur fyrirtækið söluumboð fyrir ZAUGG Ag., sem framleiða m.a. snjóblásara, flugbrautasópa og snjóplóga.
Kraftur ehf. hefur, um áratugaskeið, boðið upp á vörubílapalla, vagna og sturtudælur frá MEILLER sem og glussakerfi frá Hyva.
Við bjóðum einnig upp á ljósaboga frá Metec, myndavélakerfi frá Orlaco og driflínuhluti frá ZF.
Seinni part ársins 2026 mun Kraftur flytja höfuðstöðvar sínar að Álhellu 9 í Hafnarfirði í glænýtt hús sem mun auka þjónustu verkstæðis og varahlutadeildar til muna. Á sama tíma og höfuðstöðvar Krafts flytjast í Hafnarfjörð þá mun Kraftur opna nýtt verkstæði á Vagnhöfða 5 þar sem verður hægt að fá forgreiningu og smurþjónustu fyrir allar tegundir atvinnubifreiða.

Bifvélavirki óskast á vörubifreiða verkstæði Krafts
Kraftur ehf óskar eftir bifvélavirkja á vörubifreiðaverkstæði sitt.
Kraftur er umboðsaðili MAN á Íslandi og sér um sölu og þjónustu á vörubifreiðum, hópbifreiðum og sendibílum frá MAN. Einnig erum við með umboð fyrir KH-Kipper ábyggingar, Palfinger krana og Bucher götusópa.
Starfið sem er auglýst núna felst í viðgerðum og standsetningum á vörubifreiðum frá MAN.
Starfstöð Krafts er á Vagnhöfða 1-3 en síðar á árinu 2026 munum við flytja höfuðstöðvar okkar í nýtt og glæsilegt húsnæði að Álhellu 9 í Hafnarfirði, á sama tíma munum við opna minna verkstæði að Vagnhöfða 5.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennar viðgerðir á verkstæði
- Standsetning nýrra ökutækja
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinsbréf í bifvélavirkjun er kostur
- Reynsla af viðgerðum
- Reynsla af standsetningum er kostur
- Góð samskiptafærni og þjónustulund
- Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
- Almenn tölvukunnátta
- Stundvísi
- Ökuréttindi (meirapróf er kostur)
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegismatur
Auglýsing birt7. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vagnhöfði 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BilanagreiningBílarafmagnsviðgerðirBílvélaviðgerðirBremsuviðgerðirHjólastillingSmurþjónusta
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

WE ARE HIRING – EXPERIENCED CAR MECHANIC
RT Bílar ehf.

Bifvélavirki / reyndur bílaáhugamaður óskast einn dag í viku
Bílasafn

Viðgerðarmaður / vörubílstjóri
Stéttafélagið ehf.

Okkur vantar starfsmann strax í dekkjatörnina. Starfið er tímabundið.
Arctic Trucks Ísland ehf.

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Starfsmaður á verkstæði: Bifvélavirki / vélvirki
Intellecta

Bifvélavirki á ferð
BL ehf.

Bifvélavirki, skoðunarmaður
Aðalskoðun hf.

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Sauðárkróki
Frumherji hf

Service Technician - Reykjavik
Tesla