
BL ehf.
BL er eitt stærsta og elsta bílaþjónustufyrirtæki landsins og nær saga okkar allt aftur til ársins 1954.
Á þeim tíma hafa bílar og bílaframleiðsla breyst gríðarlega og sjaldan hefur þróunin verið jafn spennandi og einmitt núna þegar nýir möguleikar eru að opnast til að koma okkur hratt og örugglega milli staða í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna.
Á fimm starfsstöðvum rekum við umboð fyrir fólks- og atvinnubíla frá 12 framleiðendum og starfrækjum vottuð þjónustu-, málningar- og réttingaverkstæði sem eru ein þau fullkomnustu á landinu. Við leggjum áherslu á góða starfsaðstöðu og starfsanda og hjá okkur er öflugt starfsmannafélag. BL er með jafnlaunavottun og við erum fyrirmyndarfyrirtæki VR.
Hvort sem þú leitar að tímabundnu starfi eða hyggur á fagmenntun til framtíðar þá færðu frábært tækifæri hjá BL til að kynnast nýjustu tækni og öðlast reynslu í einhverri mikilvægustu og fjölbreyttustu atvinnugrein samtímans í návígi við marga af fullkomnustu og glæsilegustu bílum heims.

Bifvélavirki á ferð
BL leitar að öflugum og sjálfstæðum bifvélavirkja til fjölbreyttra starfa á Reykjanesi. Viðkomandi hefur þjónustubíl til umráða og fer á milli bílaleiga til að sinna bilanagreiningum ogviðgerðum á staðnum. Starfið felst að mestu í bilanagreiningu á bílaleigubílum, ásamt framkvæmd innkallana.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreining á bílaleigubílum, aðallega Renault, Dacia, Nissan og Hyundai
- Viðgerðir og viðhald á staðnum hjá viðskiptavinum
- Framkvæmd innkallana
- Samskipti við bílaleigur og skráning verka
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifvélavirkjun skilyrði
- Meistarapróf í bifélavirkjun kostur
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta
- Lipurð í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
- Afsláttur á hleðslustöðvum Ísorku
- Afsláttarkjör af bílum, aukahlutum, varahlutum ofl.
- Niðurgreiðsla á mat
- Afsláttur af leigu á bílum hjá Hertz
- Íþróttastyrkur
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur1. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunMeistarapróf í iðngreinMetnaðurÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSveinsprófTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Verkstjóri
Garðlist ehf

Rekstarstjóri Húsasmiðjunnar og Blómavals í Skútuvogi
Húsasmiðjan

Verkstæðismóttaka og varahlutir
IB ehf

Bifvélavirki, skoðunarmaður
Aðalskoðun hf.

Vélvirki / Vélstjóri / Bifvélavirki
Stólpi

Starf í þrifateymi / Industrial cleaning (with C+E driver´s license)
Nesbú

Þjónustustjóri Sérverkefna
AÞ-Þrif ehf.

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Sauðárkróki
Frumherji hf

Service Technician - Reykjavik
Tesla

Rennismiður með reynslu af CNC rennibekkjum og fræsivélum
Héðinn

Starfsmaður í bílarèttingu
Réttverk ehf.

Starfsmaður í tjónadeild
Vélrás