
Starfsmaður í tjónadeild
Hefur þú reynslu af bifreiðum og áhuga á tjónamálum?
VélRás óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling til starfa við tjónamat og utanumhald tjónaviðgerða. Starfið hentar vel þeim sem hafa reynslu eða þekkingu á bifreiðum, bílamálun, bifreiðasmíði, viðgerðum eða öðrum tæknilegum störfum tengdum ökutækjum og vilja þróa sig áfram á nýjum vettvangi.
Í starfinu gefst tækifæri til að vinna með sérhæfð tjónamatskerfi, eiga samskipti við tryggingafélög og taka þátt í að skipuleggja og fylgja eftir viðgerðum á fjölbreyttum ökutækjum og búnaði.
VélRás rekur eitt stærsta verkstæði landsins og sinnir viðgerðum og þjónustu á atvinnubifreiðum, rútum, eftirvögnum og vinnuvélum ásamt tjónaviðgerðum fyrir tryggingafélög.
• Gerð tjónamata í CABAS og CABAS Heavy
• Samskipti við tryggingafélög vegna tjónamála
• Skráning og utanumhald verkefna
• Eftirfylgni með tjónaviðgerðum
• Samskipti við viðskiptavini og upplýsingagjöf um framvindu mála
• Samstarf við verkstæðisformenn og tæknimenn
• Þátttaka í þróun og bætingu verkferla
• Reynsla eða þekking á bifreiðum, tækjum eða viðgerðum
• Bakgrunnur í bílamálun, bifreiðasmíði, bifvélavirkjun eða sambærilegu er kostur
• Áhugi á tjónamálum og tæknilegri úrlausn verkefna
• Góð tölvukunnátta og geta til að læra ný kerfi
• Góð samskiptahæfni og þjónustulund
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Íslenska