
STOÐ
STOÐ er sérhæft þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði heilbrigðis og rannsókna. Fyrirtækið veitir heildstæðar lausnir sem styðja fagfólk, styrkja heilbrigðiskerfið, efla rannsóknir og bæta lífsgæði einstaklinga. Þannig erum við mikilvæg stoð einstaklinga, heilbrigðisþjónustu og rannsókna.
Stoð sameinaðist systurfélagi sínu MEDOR í mars 2026 undir nafninu STOÐ og byggir starfsemin á sterkum grunni þekkingar, reynslu og sérhæfingar. Fyrirtækið sameinar annars vegar áratugalanga reynslu í stoðtækjasmíði, ráðgjöf og lausnum sem styðja fólk í daglegum athöfnum og hins vegar djúpa sérþekkingu í sölu, ráðgjöf og þjónustu á hágæða lækningatækjum og hjúkrunar- og rannsóknarvörum.
Vöru- og þjónustuframboð STOÐAR spannar allt frá háþróuðum tækjum og rekstrarvörum fyrir heilbrigðisstofnanir til lausna fyrir einstaklinga, svo sem stoðtækja, hjálpartækja og hjúkrunarvara.
STOÐ byggir starfsemi sína á gildum um hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika og leggur áherslu á langtímasamstarf og lausnir sem skapa raunverulegt virði.

Deildarstjóri innkaupa og birgðastýringar
Viltu móta nýja starfseiningu sem tryggir rétt vöruflæði, hagkvæm innkaup og öruggt vöruframboð?
STOÐ leitar að öflugum og lausnamiðuðum stjórnanda með mannaforráð til að leiða nýja deild sem ber ábyrgð á innkaupum, aðfangastjórnun og vöruhúsi.
Starfið hentar einstaklingi sem hefur sterka rekstrarhugsun, góða greiningarhæfni og ánægju af því að vinna bæði með fólki, ferla og tölur. Við leitum að leiðtoga sem getur byggt upp skýra verkferla, þróað teymi, unnið náið með birgjum og innri hagaðilum og stuðlað að betri nýtingu birgða og skilvirkari rekstri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og byggja upp nýja STOÐ-einingu með ábyrgð á innkaupum, vöruhúsi og aðfangastjórnun
- Ábyrgð á innkaupaferlum, birgðastýringu, endurpöntunum, móttöku, vörumeðhöndlun, geymslu og afhendingu
- Taka þátt í samningaviðræðum, birgjavali, kostnaðareftirliti og umbótum í innkaupum
- Greina gögn og setja fram reglubundna yfirsýn yfir stöðu birgða, vöruflæði, framboð, kostnað og lykilmælikvarða
- Vinna náið með viðskiptastjórum til að tryggja að innkaup, birgðastýring og vöruhús styðji við sölu, þjónustu og þarfir viðskiptavina
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BirgðahaldGreiningarfærniHönnun ferlaInnleiðing ferlaLeiðtogahæfniVöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Laugarásinn meðferðargeðdeild
Landspítali

Senior Procurement Specialist | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á líknardeild
Landspítali

Deildarstjóri í íbúðakjarna fyrir fatlað fólk
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á sérhæfðri endurhæfingardeild aldraðra
Landspítali

Operations Manager / Rekstrarstjóri
Tindasel - The Farm

Innkaupafulltrúi á vörulager og varahlutasvið
Vélanaust

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Gjörgæsla í Fossvogi
Landspítali

Deildarstjóri
Leikskólinn Seljaborg

Deildarstjóri hjá Klettabæ
Klettabær

Forstjóri
SÁÁ