
Innkaupafulltrúi á vörulager og varahlutasvið
Vélanaust leitar að skipulögðum og þjónustulunduðum innkaupafulltrúa til starfa á vörulager og varahlutasvið fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt bakvinnslustarf þar sem megináhersla er lögð á samskipti við birgja, utanumhald innkaupa og að tryggja rétta skráningu og afgreiðslu vara.
Innkaupafulltrúi vinnur náið með samstarfsfólki á sölu-, lager- og þjónustusviði. Viðkomandi gegnir mikilvægu hlutverki í að tryggja gott upplýsingaflæði, nákvæma skráningu og skilvirka afgreiðslu innkaupa og varahluta.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg samskipti við innlenda og erlenda birgja
- Pantanir á vörum og varahlutum og eftirfylgni með þeim
- Umsjón með skráningu vara, innkaupa og afhendinga
- Eftirfylgni með stöðu pantana og afhendingartíma
- Tryggja rétta móttöku og afgreiðslu vara í kerfum fyrirtækisins
- Yfirferð og samræming gagna vegna innkaupa og birgðahalds
- Samstarf við sölu-, lager- og þjónustudeildir
- Úrvinnsla fyrirspurna og úrlausn frávika í samráði við birgja og samstarfsfólk
- Önnur tilfallandi verkefni tengd innkaupum, vörulager og varahlutum
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af innkaupum, birgðahaldi, vörustýringu eða sambærilegu starfi er kostur
- Þekking á varahlutum, vélum eða tækjum er kostur en ekki skilyrði
- Hæfni til að halda utan um mörg verkefni og fylgja þeim eftir
- Góð samskiptafærni, frumkvæði og þjónustulund
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Um Vélanaust
Vélanaust ehf. var stofnað árið 2009 með það að markmiði að bjóða sérhæfða varahluti fyrir vinnuvélar, rútur og vörubifreiðar á hagstæðu verði. Frá stofnun hefur fyrirtækið lagt áherslu á vandaða þjónustu og faglega ráðgjöf. Starfsmenn okkar búa yfir víðtækri þekkingu á sviði vinnuvéla, rútu- og vörubifreiða og leggja metnað í að finna réttar lausnir fyrir viðskiptavini.
Vélanaust er systurfélag VélRásar og Véltinda og er staðsett í Hafnarfirði, hátt í 100 manns starfa hjá félaginu og tengdum félögum.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).
Enska
Íslenska



