

Innkaupa- og aðfangakeðjustjóri
Viltu taka þátt í einu metnaðarfyllsta loftslagsverkefnis heims?
Climeworks er leiðandi fyrirtæki á sviði kolefnisföngunar og förgunar og rekur Orca og Mammoth, tvö stærstu kolefnisföngunarver heims, á Hellisheiði.
Við leitum að öflugum innkaupa- og aðfangakeðjustjóra sem vill taka virkan þátt í að styðja við rekstur, uppbyggingu og áframhaldandi þróun starfseminnar á Íslandi.
Í þessu hlutverki verður þú lykilaðili í tengslum Climeworks við íslenska birgja, verktaka og þjónustuaðila. Þú færð tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á það hvernig við byggjum upp traust og skilvirkt birgjanet sem styður við starfsemi okkar til framtíðar.
Helstu verkefni
- Vera helsti tengiliður Climeworks á Íslandi varðandi innkaup og aðfangakeðju.
- Styðja rekstur Orca og Mammoth með skilvirkum innkaupum og birgjastjórnun.
- Annast útboð, verðfyrirspurnir og samningaviðræður við birgja og þjónustuaðila.
- Þróa og viðhalda sterkum langtímasamböndum við íslenska birgja.
- Tryggja afhendingaröryggi með markvissri áhættustýringu og eftirfylgni.
- Fylgja eftir innkaupum á varahlutum, rekstrarvörum og þjónustu fyrir iðnaðarstarfsemi.
- Taka þátt í umbótaverkefnum sem auka skilvirkni, gagnsæi og gæði innkaupaferla.
- Vinna náið með rekstrar-, verkefna- og tækniteymum bæði á Íslandi og erlendis.
Hver ert þú?
Við leitum að einstaklingi sem hefur bæði sterka samskiptahæfni og getu til að vinna sjálfstætt. Æskilegt er að þú hafir:
- Háskólamenntun eða sambærileg reynsla á sviði innkaupa, rekstrar, verkfræði, aðfangakeðju eða viðskipta.
- Að minnsta kosti fimm ára reynsla af innkaupum, rekstrarstuðningi, verkefnastjórnun eða sambærilegum störfum.
- Reynsla af samningagerð, útboðum og samskiptum við birgja.
- Góðan skilning á iðnaðarstarfsemi, viðhaldi og rekstrarumhverfi.
- Getu til að forgangsraða verkefnum og ná árangri í hraðbreytilegu umhverfi.
- Mjög góða enskukunnáttu í ræðu og riti.
- Áhuga á að vinna að lausnum sem stuðla að raunverulegum loftslagsáhrifum.
Hvað bjóðum við?
- Krefjandi og fjölbreytt starf í alþjóðlegu nýsköpunarfyrirtæki.
- Tækifæri til að hafa bein áhrif á þróun starfsemi Climeworks á Íslandi.
- Samstarf við sérfræðinga í fremstu röð á sviði kolefnisföngunar og loftslagslausna.
- Samkeppnishæf kjör og árangurstengdan bónus.
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi.
- Fjárhagslegur stuðningur við símenntun og faglega þróun.
- 28 daga orlof.
Staðsetning
Starfsstöðvar Climeworks eru á Hellisheiði. Einstaka ferðalög innanlands og til höfuðstöðva fyrirtækisins í Zürich kunna að vera hluti af starfinu.
Viltu vera með?
Hjá Climeworks vinnum við að einni stærstu áskorun samtímans: að draga varanlega úr áhrifum koltvísýrings á loftslagið og stuðla að sjálfbærari framtíð. Við fögnum umsóknum frá öllum hæfum einstaklingum og leggjum áherslu á fjölbreytt vinnuumhverfi
Enska