

Vöruhússstjóri / Store Supervisor
Hlutverkið felur í sér ábyrgð á daglegum rekstri vöruhúss Alcoa Fjarðaáls og starfsmannahaldi. Vöruhússstjóri skal tryggja að vöruhúsarekstur, ferlar, skráningar og dagleg framkvæmd séu í samræmi við verklag, innri kröfur fyrirtækisins og viðeigandi öryggis-, gæða- og rekstrarkröfur.
Starfið krefst góðrar yfirsýnar, leiðtogahæfni og hæfni til að vinna þvert á deildir, meðal annars með viðhaldi, framleiðslu, innkaupum, fjármálum, UHÖ, birgjum, verktökum og öðrum samstarfsaðilum.
Rekstrarábyrgð á vöruhúsi
-
Leiða og stýra daglegum rekstri vöruhúss með áherslu á öryggi, heilsu, umhverfi, gæði og skilvirkni.
-
Bera ábyrgð á móttöku, geymslu, tiltekt, undirbúningi, afhendingu, skilum á vörum.
-
Tryggja að vöruhúsastarfsemi styðji þarfir viðhalds og framleiðslu.
-
Stýra skipulagi, rýmisnýtingu, aðgengi, öryggi og umhirðu vöruhúsasvæða.
-
Tryggja að réttar vörur séu aðgengilegar og tiltækar þegar rekstur og viðhald þurfa á þeim að halda.
Birgðir, gögn og rekjanleiki
-
Bera ábyrgð á birgðanákvæmni og vörutalningu.
-
Tryggja rétta staðsetningu, merkingu, skráningu og rekjanleika vara í vöruhúsa- og birgðakerfum.
-
Fylgja eftir frávikum, leiðréttingum, töpuðum vörum og öðrum málum sem hafa áhrif á birgðir eða móttöku.
-
Yfirferð á úreldum og umfram birgðum samkvæmt samþykktu verklagi.
-
Tryggja að gögn og skráningar séu áreiðanlegar.
Starfsmannahald og liðsheild
-
Hafa umsjón með verkefnaúthlutun, forgangsröðun og daglegri nýtingu mannafla.
-
Tryggja að starfsfólk hafi viðeigandi þjálfun, hæfni og skilning á áhættu, ábyrgð og verklagi.
-
Styðja við starfsfólk, starfsþróun, ferli og jákvæða liðsheild.
-
Tryggja að mönnun og vinnuskipulag séu í samræmi við verkefni og þjónustuþörf.
-
Tryggja öryggi starfsfólks, verktaka, birgja og annarra sem koma að vöruhúsastarfsemi.
Mælikvarðar, úttektir og umbætur
-
Fylgja eftir mælikvörðum.
-
Tryggja að vöruhúsið sé undirbúið fyrir innri og ytri úttektir.
-
Greina veikleika í ferlum og koma úrbótum í framkvæmd.
-
Stuðla að stöðugum umbótum og tryggja að þær styðji markmið vöruhússins.
Menntun og reynsla
-
Menntun sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af vöruhúsarekstri, birgðahaldi og aðfangakeðju er kostur.
-
Reynsla og hæfni í stjórnun, mönnun, teymisþróun eða sambærilegu leiðtogahlutverki er kostur.
-
Þekking á birgðanákvæmni, rekjanleika, mælikvörðum og umbótaverkefnum er kostur.
-
Þekking á öryggis-, gæða-, rekstrar- og verklagskröfum í iðnaðarumhverfi er kostur.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta er mikilvæg.
Hæfni
-
Sterk leiðtogahæfni og geta til að byggja upp trausta liðsheild.
-
Sterk rekstrarleg yfirsýn og hæfni til að forgangsraða.
-
Ábyrgðarkennd, nákvæmni og fagleg vinnubrögð.
-
Lausnamiðað og umbótasinnað viðhorf.
-
Sterk samskiptahæfni og þjónustulund.
-
Áhersla á öryggi, gæði, skilvirkni og áreiðanleika.
-
Geta til að fylgja málum eftir og koma úrbótum í framkvæmd.
- Mötuneyti
- Fríar rútuferðir til og frá vinnu
- Heilsutengdir styrkir
- Velferðaþjónusta
Enska
Íslenska