
SÁÁ
SÁÁ eru frjáls og óháð almannaheillasamtök sem starfrækja sérhæfða heilbrigðis- og lýðheilsuþjónustu vegna fíknsjúkdóms og veita jafnframt víðtækan stuðning við aðstandendur.
Samtökin gegna lykilhlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi og bjóða upp á samfellu í þjónustu sem nær yfir fráhvarfs- og lyfjameðferð, inniliggjandi meðferð, dag- og göngudeildarþjónustu, eftirfylgni og stuðning. Þjónustan er veitt í samræmi við faglegar leiðbeiningar, bestu þekkingu hverju sinni og gagnreyndar aðferðir.
SÁÁ eru bæði þjónustuaðili og málsvari.
Samtökin sinna sérhæfðri meðferð í umboði samfélagsins og standa jafnframt vörð um réttindi, velferð og mannvirðingu fólks með fíknsjúkdóm og fjölskyldna þeirra. Í starfinu er lögð sérstök áhersla á að tryggja jafnt aðgengi að árangursríkri meðferð, veita heildræna og þverfaglega þjónustu og efla bataferli einstaklinga og nánustu aðstandenda þeirra með markvissum stuðningi og fræðslu.
Sjá nánar á www.saa.is
Forstjóri
Vilt þú leiða starfsemi sem skiptir raunverulegu máli fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið allt?
SÁÁ leitar að öflugum forstjóra sem sameinar skýra framtíðarsýn, sterka leiðtogahæfni og góðan skilning á rekstri og þróun heilbrigðisþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Heildarábyrgð á starfsemi, rekstri og árangri SÁÁ gagnvart stjórn
- Leiða stefnumótun og innleiðingu stefnu í nánu samstarfi við stjórn, stjórnendur og starfsfólk
- Tryggja faglega, örugga og samfellda þjónustu við fólk með fíknsjúkdóma og aðstandendur þeirra
- Styrkja fjárhagslegan grundvöll SÁÁ og tryggja ábyrga nýtingu fjármuna
- Leiða og efla stjórnendateymi og stuðla að traustri, jákvæðri og árangursríkri vinnustaðamenningu
- Leiða nauðsynlegar breytingar, umbætur og þróun starfseminnar með virkri þátttöku starfsfólks
- Efla samstarf við stjórnvöld, heilbrigðiskerfið, fagfólk, þjónustuþega og aðra lykilhagaðila
- Tryggja góða stjórnarhætti, skýra ábyrgð og reglubundna upplýsingagjöf til stjórnar
- Vera öflugur talsmaður SÁÁ og samfélagslegs hlutverks samtakanna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, heilbrigðismenntun er æskileg og framhaldsmenntun er kostur
- Farsæl reynsla af umfangsmikilli stjórnun og rekstrar- eða fjárhagsábyrgð
- Sýndur árangur af stefnumótun, breytingastjórnun og þróun starfsemi
- Sterk leiðtoga-, samskipta- og samstarfshæfni
- Góð þekking á fjármálum, áætlanagerð, samningagerð/stjórnun og árangursstjórnun
- Hæfni til að leiða sérfræðinga og byggja upp öflugt og samstillt stjórnendateymi
- Hæfni til að skapa traust og ná árangri í samstarfi við fjölbreyttan hóp hagaðila
- Skýr sýn, framkvæmdakraftur og geta til að takast á við flókin og krefjandi viðfangsefni
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Við leitum að leiðtoga sem
- Brennur fyrir tilgangi og samfélagslegu hlutverki SÁÁ
- Leiðir af festu, nærgætni og heilindum
- Getur sameinað ólíka hópa um skýra stefnu
- Hlustar, byggir upp traust og tekur erfiðar ákvarðanir þegar þess þarf
- Sameinar faglega sýn og öflugan rekstrarskilning
Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur27. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu
Íslandsstofa

Deildarstjóri í íbúðakjarna fyrir fólk með fatlanir
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Deildarstjóri hjá Klettabæ
Klettabær

Vöruhúsastjóri
Innnes ehf.

Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar
Reykjanesbær

Útstillingahönnuður H&M
H&M

Aðstoðarverslunarstjóri - BYKO Granda
Byko

Aðstoðardeildarstjóri á nýrri bráðamatsdeild
Landspítali

Operations Manager
Tindasel - The Farm

Teymisleiðtogi í hugbúnaðarþróun
Five Degrees ehf.

Hjúkrunarfræðingur á geðlækningastofu (80-100%) - afleysing með möguleika á framtíðarráðningu
Per mentis

Verkefnastjóri á lifandi og kraftmiklum vinnustað
Þekkingarnet Þingeyinga