

Fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu
Íslandsstofa leitar að öflugum fagstjóra til að leiða starf á sviði ferðaþjónustu og markaðssetningar Íslands sem áfangastaðar. Starfið heyrir undir svið útflutnings og fjárfestinga.
Fagstjóri ferðaþjónustu veitir faglega forystu, leiðir teymi ferðaþjónustu og ber ábyrgð á stefnumótun, áætlanagerð og þróun verkefna geirans. Markmið starfsins er að styðja íslensk ferðaþjónustufyrirtæki í sókn á erlenda markaði og auka vitund um styrkleika Íslands sem áfangastaðar, með áherslu á sjálfbærni, gæði og aukna verðmætasköpun.
Starfið felur í sér náið samstarf við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki, stjórnvöld og aðra hagaðila innanlands og erlendis. Fagstjóri er talsmaður ferðaþjónustunnar í starfi Íslandsstofu og gegnir lykilhlutverki í að greina tækifæri, þróa samstarf og tryggja markvissa framkvæmd verkefna á erlendum mörkuðum.
- Veita faglega forystu og leiða teymi ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu.
- Móta og fylgja eftir áætlunum, markmiðum, forgangsröðun og árangursmælikvörðum geirans.
- Leiða þróun og framkvæmd verkefna sem styðja útflutningssókn og alþjóðlegan sýnileika íslenskrar ferðaþjónustu.
- Greina tækifæri á erlendum mörkuðum og þróa markaðs- og kynningarverkefni í samstarfi við fyrirtæki og hagaðila.
- Stýra þátttöku Íslands í viðburðum, kynningum, ráðstefnum og öðrum sameiginlegum verkefnum á sviði ferðaþjónustu.
- Byggja upp og viðhalda öflugu samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki, samtök, stjórnvöld, stofnanir og áfangastaðastofur.
- Tryggja faglega og samræmda framsetningu á styrkleikum Íslands sem áfangastaðar.
- Veita fyrirtækjum ráðgjöf og þjónustu með áherslu á sjálfbæra þróun, gæði og verðmætasköpun.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi; framhaldsmenntun er kostur.
- Djúp þekking á ferðaþjónustu og starfsumhverfi ferðaþjónustufyrirtækja.
- Þekking á alþjóðlegum mörkuðum, markaðssetningu og þróun ferðaþjónustu.
- Reynsla af stjórnun, faglegri forystu og/eða leiða teymi
- Farsæl reynsla af stefnumótun, áætlanagerð og stjórnun verkefna.
- Reynsla af alþjóðlegu samstarfi, ferðaþjónustuverkefnum eða áfangastaðastjórnun er kostur
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að miðla flóknu efni skýrt í ræðu og riti á báðum tungumálum
- Öflug samskipta- og samstarfshæfni, frumkvæði og hæfni til að byggja upp traust tengsl.
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð, leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri.
Íslandsstofa er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda. Íslandsstofa sinnir mörkun og markaðssetningu fyrir Ísland og íslenskar útflutningsgreinar, styður íslensk fyrirtæki í sókn á erlenda markaði og greiðir götu erlendrar fjárfestingar í íslensku atvinnulífi.
Framtíðarsýn langtímastefnu fyrir íslenskan útflutning er að Ísland verði þekkt sem leiðandi land á sviði sjálfbærni.
Enska
Íslenska










