Þekkingarnet Þingeyinga
Þekkingarnet Þingeyinga
Þekkingarnet Þingeyinga

Verkefnastjóri á lifandi og kraftmiklum vinnustað

Þekkingarnet Þingeyinga auglýsir eftir öflugum verkefnastjóra á starfsstöð stofnunarinnar á Húsavík. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur reynslu af rekstri, góða samskiptahæfni og býr yfir frumkvæði og sjálfstæði í störfum. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi vinnur þvert á öll stoðsvið stofnunarinnar.

Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst.

Öll áhugasöm eru beðin um að senda ferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Upplýsingar um starfið veitir Lilja Rögnvaldsdóttir í síma 464-5100 og [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjón með daglegum rekstri og þróun starfsemi
Áætlanagerð, uppgjör og ársreikningar
Samstarf við ráðuneyti, atvinnulíf, sveitarfélög og fræðsluaðila
Fjármögnun verkefna og gerð styrkumsókna
Samningagerð
Umsjón með leigusamningum og þjónustu við leigjendur
Launaumsýsla
Skýrslugerð, tölfræði úr starfi og miðlun upplýsinga
Kynningar, móttaka hópa og skipulag viðburða
Teymisvinna í fjölbreyttum verkefnum á stoðsviðum stofnunarinnar
Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Reynsla af rekstri, stjórnun og mannauðsmálum er kostur
Drifkraftur og frumkvæði í starfi
Lausnamiðuð hugsun og jákvæð lund
Góð færni í samskiptum og samstarfi
Haldgóð þekking á fagsviðum Þekkingarnetsins er kostur
Geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis
Góð tölvukunnátta og tæknilæsi
Gott vald á íslensku og ensku

Auglýsing birt28. júlí 2026
Umsóknarfrestur16. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnarstétt 1, 640 Húsavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.AuglýsingagerðPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.UppgjörPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar