
Þjónustu og rekstrarfulltrúi
Starfslýsing – Rekstrarfulltrúi
Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til að ganga til liðs við teymið okkar. Starfið er fjölbreytt og verkefnin geta verið breytileg eftir árstíma og þörfum fyrirtækisins.
Starfið hefst með markvissri aðlögun þar sem starfsmaður fær þá þjálfun og leiðsögn sem þarf til að sinna starfinu af öryggi. Umfang og ábyrgð aukast síðan smám saman eftir því sem reynsla og þekking eykst.
Launin miðast við hvort aðili sé í hlutastarfi eða í fullu starfi
Helstu verkefni:
-
Afgreiðsla og pökkun pantana.
-
Lagerumsjón og birgðahald.
-
Sendingar og samskipti við póst og flutningsaðila.
-
Samskipti við viðskiptavini í gegnum síma, tölvupóst og samfélagsmiðla.
-
Svörun tölvupósta og almenn þjónusta.
-
Kynningar á vörum í verslunum og á viðburðum.
-
Almenn aðstoð við daglegan rekstur fyrirtækisins og önnur tilfallandi verkefni.
Við gerum engar kröfur til menntunar, við leitum að jákvæðum og sjákfstæðum einstakling sem er tilbúin í fjölbreytt verkefni og er áreiðanleg/ur.
Íslenska










